Jón Sigurðsson og Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi formenn Framsóknarflokksins, segjast ekki kannast við að hafa unnið gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni á flokksþingi Framsóknarflokksins síðasta haust.
Sigmundur sagði í viðtali í þættinum Eyjunni í gær að 2007-hópurinn, hópurinn sem var ráðandi í flokknum í kringum þingkosningarnar 2007 og var mjög ósáttur við innkomu hans árið 2009, hafi mætt á flokksþingið þegar kosið var til formanns á sunnudeginum:
Flest drógu sig í hlé út úr flokksstarfinu og pólitíkinni, en dúkka svo upp á flokkþinginu en ekki til þess að fylgjast með ræðunum, ekki til að taka þátt í málefnavinnunni, heldur á sunnudagsmorgninum. Þá sé ég bara allt í einu að liðið er allt mætt, og útkall í gangi,
sagði Sigmundur um Valgerði og Jón. Sagði hann einnig að stuðningur þeirra við Sigurð Inga Jóhannsson hafi eingöngu snúist um að losna við hann, en í kjölfar miðstjórnarfundsins hafi flest þeirra snúið baki við Sigurð Inga.
Kannast ekki við að hafa verið á flokksþinginu á sunnudeginum
Valgerður segir í samtali við Morgunblaðið í dag að hún hafi ekki verið á flokksþinginu á sunnudeginum, hún hafi litið við sem áhugasamur Framsóknarmaður á flokksþingið á laugardeginum en farið til útlanda á sunnudeginum. Aðspurð um hvort hún hafi unnið gegn Sigmundi á flokksþinginu sagði Valgerður:
Hvað þýðir það? Átti ég að hafa komið með fjölda fólks með mér á þingið?
Jón segist heldur ekki hafa verið á flokksþinginu á sunnudeginum:
Hann hefur ekki getað séð mig þar en ég veit þó að hann hefur oft sagt að hann sjái lengra nefi sínu,
sagði Jón. Eina sem hann hafi gert fyrir flokksþingið var að skrifa grein sem birtist í fjölmiðlum þar sem hann taldi upp ástæður þess að aflandsreikningur gæti skaðað trúverðugleika manns í opinberu lífi, enginn hafi þó verið nafngreindur í þeirri grein en augljóst sé að Sigmundur hafi tekið það til sín:
Ég er hins vegar mjög þakklátur fyrir það að vera kallaður flokkseigandi. Það er mikið virðingarheiti. Ég er auðvitað hreykinn, ef það er rétt, að lítið greinarkorn í dagblaði hafi slík áhrif.