fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

RÚV-arar hjóla í Davíð Oddsson: „Gæti birst í rússnesku Putin-blaði eða í málgögnum öfgasamtaka“

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 8. maí 2017 08:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óðinn Jónsson og Davíð Oddsson. Samsett mynd/DV

Óðinn Jónsson þáttastjórnandi Morgunvaktarinnar á Rás 1 og fyrrverandi fréttastjóri RÚV segir að Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins um helgina gæti allt eins hafa birst í rússnesku dagblaði hliðhollu forsetanum Vladímír Pútín eða í málgögnum öfgasamtaka. Undir þetta tekur Viðar Eggertsson leikstjóri og höfundur fjölmargra útvarpsþátta RÚV.

Í Reykjavíkurbréfi helgarinnar, þar sem Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins heldur yfirleitt á penna, var farið yfir forsetakosningarnar í Frakklandi, en í gærkvöldi var ljóst að Emmanuel Macron verður næsti forseti Frakklands, ekki Marine Le Pen. Fór Davíð lauslega yfir frambjóðendurna og sagði hann veikar forsendur fyrir því að stimpla Le Pen sem öfgahægrimann:

Emmanuel Macron og Marine Le Pen.

Stefnumál Marine Le Pen hafa verið kunn lengi og hún hefur verið sjálfri sér samkvæm að mestu leyti og alveg sérstaklega á mælikvarða stjórnmálanna. Svo sannarlega má hafa gildar ástæður til að fella sig ekki við ýmsar skoðanir hennar. En enginn kjósenda hennar kaupir köttinn í sekknum í hennar tilviki.

Sömu sögu er ekki að segja um Emmanuel Macron. Kjósendur vita það eitt um hann, að þar fer köttur, liðugur mjög eins og flestir í þeirri ætt. Macron gæti búið yfir 9 lífum kattarins og kemur oft niður á lappirnar. En þótt þetta sé að sönnu vitað um Macron, þá er sekkurinn um köttinn þann svo þykkur að enginn veit hvort hann er svartur eða hvítur.

„Hann sleikir sárin sem blæða eitri“

Óðinn segir á Fésbókarsíðu sinni, eftir að úrslitin voru ljós, að hófsamir lýðræðissinnar um alla Evrópu fagni sigri Macron:

Emmanuel Macron verður næsti forseti Frakklands. Því fagna hófsamir lýðræðissinnar um alla Evrópu, ekki síst að stöðvuð hafi verið sókn öfgafullrar hægrisinnaðrar þjóðernishyggju. Ritstjóri Morgunblaðsins á ekki samleið með hófsömum evrópskum lýðræðissinnum. Hatrið á Evrópusambandinu er þvílíkt að hann ber blak af Marine Le Pen, líst bara vel á hana,

segir Óðinn og vitnar í Reykjavíkurbréf helgarinnar:

Fyrir kosningarnar í dag taldi ritstjórinn líklegt að Macron ynni, eins og skoðanakannanir bentu til, og þar með stæðist ESB „atlögu lýðræðisins.“ Svona fréttaskýring gæti birst í rússnesku Putin-blaði eða í málgögnum öfgasamtaka. En þetta er skrifað í Morgunblaðið árið 2017.

Undir þetta tekur Viðar Eggertsson, segir hann:

Íslenska þjóðin hafnaði eftirminnilega og verðskuldað þessum ritstjóra í síðustu forsetakosningum. Hann sleikir sárin sem blæða eitri…

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð