Á morgun miðvikudag verður opið málþing í Háskólanum í Reykjavík frá klukkan 10 til 14 í stofu M208 með yfirskriftinni Friður og öryggi á norðurslóðum. Þar verður varpað fram spurningunni hvernig smáríki geti unnið að friði og stöðugleika á norðurslóðum og hverjar séu helstu áskoranirnar fyrir þetta mikilvæga svæði. Samskipti smáríkja við norðurhjara við stærri ríki verða könnuð og hvað framtíðin beri í skauti sér.
Dagskrá málþingsins er svohljóðandi:
10:00-11:30
Nordic Cooperation: Towards a Sustainable Peace in the Arctic
Pia Hansson framkvæmdastjóri Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands
West-Nordic Security: From the Cold War to Present Time
Inga Dóra Markussen aðalritari Vestnorræna ráðsins
Climate Change in the Arctic: Threat to Security or Opportunity for Peace Building?
Auður H. Ingólfsdóttir aðstoðarprófessor við Háskólann á Bifröst
Security, Geopolitics and Governance Challenges in Relation to Arctic Extractive Industries
Gunhild Hoogensen Gjørv Professor í friðar- og átakarannsóknum við UiT – The Arctic University of Norway
Hádegishlé
12:30 – 14:00
High North, Low Tension? What will the Impact of the Trump Presidency be on Arctic Relations?
Silja Bára Ómarsdóttir aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Is Arctic (Comprehensive) Security Ever About the Arctic, and if not, can the Nordic Small States do Anything to Ensure Arctic Peace?
Rasmus Gjedssø Bertelsen prófessor við UiT -The Arctic University of Norway
SAR: That, Which We Can All Agree Upon
Sóley Kaldal, áhættustýring og öryggismál hjá Landhelgisgæslunni
Icelandic Nuclear Weapon Free Zone
Bjarni Már Magnússon aðstoðarprófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík