„Dónaskapur og frekja (sumra) íslenskra rútufyrirtækja í miðbæ Reykjavíkur er eitt skýrasta dæmið um neikvæða fylgifiska ferðamennskunar. Ég vil ekki alhæfa og vonandi eru einhver fyrirtæki betri en Extreme Iceland sem sést hér.“
Þetta segir Gísli Marteinn og á við atvik sem Pressan fjallar um í dag. Rútubílstjóri í miðbæ Reykjavíkur brást ókvæða við þegar hann var gagnrýndur fyrir að leggja á miðri götu þegar hann gat stöðvað á Smiðjustíg. Vegfarandinn sagði að það væri starf rútubílstjórans að leggja rétt, svaraði rútubílstjórinn því með: „I honestly don‘t give a fuck.“
Fjölmargir hafa tjáð sig um frétt Pressunnar. Halldór Auðar borgarfulltrúi segir:
„Sem borgarfulltrúi (svo langt sem það nær nú) vil ég fordæma svona virðingarleysi gagnvart náunganum. Frekjan má ekki drepa mannlífið í miðbænum.“
Þá segir söngvarinn Logi Pedro Stefánsson:
„Hef búið í 101 alla mína ævi og ein stærsta breytingin síðustu ár er umferð rúta um hverfið. Ég lendi í því ótrúlega oft á viku (5+ sinnum) að rútur annaðhvort stoppi alla umferð eða leggi uppi á gangstéttum til að sækja túrista. Þetta er eiginlega óviðunandi ástand.“
Fulltrúi ferðaþjónustufyrirtækisins Extreme Iceland sagði þessa hegðun er ekki til eftirbreytni og er beðist velvirðingar á þessari framkomu. Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi fjallar einnig um atvikið og bendir á að bílstjórinn leggi upp á gangstétt þrátt fyrir að sérmerkt rútustæði við Traðarkot sé skammt frá. Gísli Marteinn segir að lokum.
„Linkind borgaryfirvalda er líka óþolandi. Af hverju eru þessir aðilar ekki rukkaðir þegar þeir stöðva rúturnar uppá gangstéttum? Og eitt er sjaldan nefnt en ég þekki vel: Gangstéttarhellurnar mölbrötna undan dekkjum rútanna, þannig að við almennir borgarar höfum ekki bara veruleg óþægindi af þessari framkomu, heldur berum við kostnaðinn líka. Enginn túristi myndi telja það eftir sér að labba 100 metra að rútustæði.“