fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Eyjan

Heimir og Gulli vaða í Hildi: „Eins og skítafýlan sé farin að kenna rassgatinu hvernig á að hegða sér“

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 8. mars 2017 16:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Jaðarsetningin á Sindra Sindrasyni ætlar bara ekki að stoppa. Allar fiðlurnar og öll kertin fyrir hann. Mér er skapi næst að kveikja í hárinu á mér fyrir aumingja kúgaða hvíta ófatlaða epalhommann með alla sjónvarpsþættina.“

Þetta sagði Hildur Lillendahl Viggósdóttir starfsmaður Reykjavíkurborgar á Fésbók í gær. Margir ræddu um viðtal Sindra Sindrasonar við Töru Margréti Vilhjálmsdóttur í Íslandi í dag í fyrradag en fá ummæli voru jafn umdeild og ummæli Hildar.

Sjá frétt: Sagði homma sem á litað ættleitt barn og er giftur útlendingi ekki vera í jaðarhópi

Mál gærdagsins var rætt í útvarpsþættinum Bítið á Bylgjunni í morgun þar sem þáttastjórnendur tóku ummæli Hildar sérstaklega fyrir og veltu upp spurningunni hvort Hildur verður látin líða fyrir ummæli sín sem opinber starfsmaður. Nefnt hefur verið á samskiptamiðlum að dæmi sé um að starfsmanni sveitarfélags hafi verið sagt upp fyrir umdeild skrif á netinu, en því máli lauk með því að dómstólar dæmdu uppsögnina ólögmæta.

Þráinn Steinsson sagði að Hildur hefði talið sig vera málsvara þeirra sem minna mega sín og gengið fram með jafnréttisspjótið hátt á uppi, reiðir hátt til höggs, las hann svo upp ummæli Hildar og sagði svo:

Hún fer að uppnefna hann. Af hverju þarf hún að draga kynhneigð hans inn í þetta og skeyta einhverju forskeyti þar fyrir framan eins og epalhommi. Þetta er bara gert til að niðra hann. Þetta er eins og við færum að kalla Svavar Örn hárgreiðsluhommann. Hvaða vitleysa er þetta?

Heimir Karlsson spurði hvort þetta gæti haft afleiðingar fyrir hana sem sem starfsmann borgarinnar? Þá sagði Þráinn

Fólk sem að vinnur svona, næsta hurð er væntanlega skrifstofa jafnréttisráðs. Að gera þetta. Það er svona eins og skítafýlan sé farin að kenna rassgatinu hvernig á að hegða sér.

Skjáskot af viðtalinu umdeilda.

Gulli Helga sagði þá: „Það er annað hvort eitthvað að þarna, eða hún sest við tölvuna og hugsar með sér, „jæja best að henda inn einni sprengju núna“ og skrifar eitthvað og svo situr hún heima og hlær að viðbrögðunum. Þarna er verið að tala við fólk sem er á móti fordómum en hljómar eins og það sé sjálft með fordóma.“

Heimir sagði að oftast væru það sömu aðilarnir sem töluðu í hástöfum, en spurði hvort opinberir stafsmenn, sem stíga fram með svona virkilega ljótum orðum um eina persónu komist upp með það án þess að gjalda fyrir það:

Hvað með opinbera stafsmenn, það hefur verið talað um það m.a. í þessum þætti af öðrum starfsmönnum opinberra stofnanna eins og Reykjavíkurborgar eins og t.d. Hildur, sem stígur svona fram ég segi bara með svona virkilega ljótum orðum um í garð einnar opinberrar persónu hvort það megi og hvort það gjaldi fyrir það?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigmundur uppskar mikinn hlátur á Alþingi í dag – „Vinnustaðasálfræðingur, frú forseti, hefur verið fenginn af minna tilefni“

Sigmundur uppskar mikinn hlátur á Alþingi í dag – „Vinnustaðasálfræðingur, frú forseti, hefur verið fenginn af minna tilefni“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Leigubílafarganið

Björn Jón skrifar: Leigubílafarganið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Evrópuhreyfingin: Húsfyllir á aðalfundi – Magnús Árni tekur við formennsku af Jóni Steindóri

Evrópuhreyfingin: Húsfyllir á aðalfundi – Magnús Árni tekur við formennsku af Jóni Steindóri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þungt högg fyrir Demókrata

Þungt högg fyrir Demókrata
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Að fatta fattið

Steinunn Ólína skrifar: Að fatta fattið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingmaður Viðreisnar tekur sér leyfi og fer í áfengismeðferð – „Ég ætla að sigrast á þessum djöfli“

Þingmaður Viðreisnar tekur sér leyfi og fer í áfengismeðferð – „Ég ætla að sigrast á þessum djöfli“
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Þannig eru þessir hópar jafnvel til viðbótar afkastamiklir þegar kemur að skipulögðu smygli á fólki og mansali“

„Þannig eru þessir hópar jafnvel til viðbótar afkastamiklir þegar kemur að skipulögðu smygli á fólki og mansali“