
Lengi stóðu menn í þeirri trú að það væri hræðilegt tap ef ekki væri virkjuð hver spræna og hver hola sem stóð gufa upp úr, þá var talað um að ónýtt orka hyrfi út í sjó eða upp í loftið.
Því miður fékk þetta viðhorf víða að ráða, eins og til dæmis í Hellisheiðarvirkjun. Þar var viðkvæm orkulind notuð til að knýja stóriðjuver – og ekki skeytt um mengun, umhverfisspjöll eða þá staðreynd að jarðgufa endurnýjast mjög hægt, það er hægt að ganga á hana með þeim hætti að hún þverr. Og því jaðrar við sturlun að nota slíka orku í stóriðju – slíkt fer bara alls ekki saman. Í þessu efni létu menn varnaðarorð eins og vind um eyru þjóta. Líklega var það fyrst og fremst hroki sem réð.
Hellisheiðarvirkjun er orðin tákn um skammsýni og vanhæfni – það verður að segjast eins og er. Arnar Sigurðsson skrifar um virkjunina í pistli hér á Eyjunni, rekur fyrst hinn furðulega rekstur Orkuveitu Reykjavíkur um og eftir aldamót, en segir svo:
Þó var bara um smáaura að ræða í samanburði við hina glórulausu fjárfestingu veruleikafirrtra stjórnenda fyrirtækisins í Hellisheiðarvirkjun. Heildarskuldir Orkuveitunnar nema nú hvorki meira né minna en 172 milljörðum sem að langstærstum hluta er tilkomið vegna raforkuframleiðslu fyrir álverið á Grundartanga. Álverið borgar líklega lægsta rafmagsverð allra álvera í heiminum eins og fram hefur komið á orkubloggi Ketils Sigurjónssonar (til samanburðar skuldaði OR 17 milljarða 2002)
Forsaga málsins er sú að þegar álverið var stækkað undirbauð Orkuveitan Landsvirkjun sem þá þegar hafði markað sér þá stefnu að hækka verð til stóriðju. Að opinber stofnun skuli undirbjóða aðra fyrir erlenda málmbræðslu hlýtur að vera einstakt. Niðurstaðan er að raforkusala Helga Hjörvars og Alfreðs Þorsteinssonar skilar arðsemi sem er 3% undir fjármagnskostnaði. Þar með er þó tjón kjósenda í Reykjavík ekki á enda því virkjunin er ekki sjálfbær og hefur orkan fallið frá fyrsta degi og fellur enn.
Svokallað umhverfismat vegna virkjunarinnar er auðvitað einn stór brandari. Útblástur á tugþúsundum tonna af brennisteinsvetni var afgreitt með einni setningu eitthvað á þá leið að brennisteinslykt gæti aukist tímabundið. Landvernd benti á að mikilvægt væri að merkja bílastæði.
Í dag er sorglegt um að líta á virkjunarsvæðinu sem flokka má sem eitt risavaxið umhverfisslys, rusl og drasl hvert sem litið er. Ótengdar leiðslur sem ryðga á víðavangi eru hinsvegar ágætur minnisvarði um stjórnmálamenn sem misst hafa tengingu við veruleikann og skilning á almannaþjónustu.