Eitt er það sem stjórnmálaflokkar á Íslandi vilja helst ekki gefa upp þegar líður að kosningum – það er með hvaða flokkum þeir vilja vinna eftir kosningarnar.
Skýr svör um það efni gætu nefnilega fælt frá einhverja kjósendur.
Þess vegna höfum við að nokkru leyti ekki nægar upplýsingar um flokkana til að geta kosið þá.
Við vitum ekki hverjar raunverulegar fyrirætlanir þeirra eru.
Í staðinn er stundaður nú fyrir kosningarnar einhvers konar hí-á-þig leikur.
Framsóknarmenn hrópa að nú ætli Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin að koma saman í „verðtryggingarstjórn“, gegn hugmyndum Framsóknar.
Sjálfstæðismenn hrópa að Framsóknarflokkurinn ætli að fara í stjórn með vinstri flokkunum og því megi alls ekki kjósa hann, það atkvæði sé beinlínis ávísun á vinstri stjórn.
En Samfylkingin æpir að nú ætli Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn að fara saman í „helmingaskiptastjórn“.