Kiljan í kvöld gerist aðallega norður í landi, á Siglufirði og Akureyri.
Á Siglufirði skoðum við gamala hús Hjálpræðishersins sem á sér afar merkilega sögu. Þar hittum við líka Pál Helgason sem flytur okkur kvæði sem hann orti á tíma útrásarinnar – það má segja að þetta sé eins konar spásögn um þá braut sem íslenska þjóðin var að feta.
Á Akureyri hittum við Margréti Guðmundsdóttur sagnfræðing. Hún segir okkur frá gagnmerkri bók eftir sig. Það er Saga hjúkrunar á Íslandi. Hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þetta er mikil örlagasaga og fjallar ekki bara um hjúkrunarkonur og hjúkrunarfræðinga, heldur um heilbrigðismál og sjúklingana sem þjáðust meðal annars af holdsveiki og berklum.
Þar hittum við líka Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, hótelstjóra og fyrrverandi bæjarstjóra, sem segir okkur frá uppáhaldsbókunum sínum. Sigrún er í leshring á Akureyri – það er hópur kvenna sem les bækur, hittist og ræðir þær.
Þorgerður E. Sigurðardóttir og Haukur Ingvarsson fjalla um skáldsögu Steinunnar Jóhannesdóttur sem nefnist Heimanfylgja og Píslarvotta án hæfileika eftir Kára Tulinius.
Bragi er á sínum stað í lok þáttarins.
Ævintýrlega fögur mynd af Siglufirði í Norðurljósum sem er að finna á vef Herhússins.