fbpx
Mánudagur 25.ágúst 2025
Eyjan

Framsókn og Stjórnlagaþingið

Egill Helgason
Laugardaginn 26. febrúar 2011 21:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var frægt þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði á Alþingi eftir frægan úrskurð Hæstaréttar: „Guði sé lof fyrir Hæstarétt.“

Sigmundur segir nú að rétt sé að bíða með Stjórnlagaþingið.

Framsóknarflokknum lá samt mikið á Stjórnlagaþinginu á landsþingi sem haldið var í janúar 2009, það var þá að Sigmundur var kjörinn formaður.

Í ályktun landsþingsins segir um Stjórnlagaþing og breytingar á stjórnarskránni:

„Markmið

Að stjórnskipun Íslands verði endurskoðuð á sérstöku stjórnlagaþingi þar sem stjórnarskrá Íslands og eftir ástæðum viðeigandi lög um stjórnsýslu, dómstóla, löggjafarstarf og kosningar verðiendurskoðuð til samræmis við framsæknar hugmyndir um stjórnskipun landsins um gagnsæi, lýðræðislega þátttöku og jafnvægi milli valdþátta.

Leiðir

Helstu álitamál sem taka þarf afstöðu til á stjórnlagaþingi eru meðal annars:
• Hvort afnema eigi þingræði og taka upp beina kosningu æðsta handhafa framkvæmdarvalds
• Hvernig eftirliti með valdháttum eigi að vera háttað, eftirlitshlutverk Alþingis, virkari ráðherraábyrgð og óháðara val dómara
•    Hvort auka eigi valfrelsi kjósenda um fulltrúa á framboðslistum •    Hvort takmarka eigi hámarkssetutíma þingmanna og ráðherra •    Hvort auka eigi möguleika á þjóðaratkvæði og jafnvel frumkvæði að löggjöf frá almenningi •    Hvernig gagnsæi stjórnkerfisins sé tryggt •    Hvort þörf sé á sérstökum þjóðhöfðingja og þá hvert hlutverk hans eigi að vera •    Hver staða sveitarfélaganna eigi að vera, svo sem með hlutdeild í fjárstjórnarvaldi ríkisins •    Hvort og þá hvernig skipta eigi landinu í kjördæmi •    Hvernig staðið skuli að framsali valdheimilda til alþjóðlegra stofnana • Hvernig tryggja eigi skýrt og ótvírætt sjálfstæði hinna þriggja meginþátta ríkisvaldsins
löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdarvalds

Fyrstu skref

Þingflokkur Framsóknarflokksins skal leggja fram tillögu á Alþingi um kosningu til stjórnlagaþings í samræmi við niðurstöður íbúalýðræðisnefndar flokksins. Einnig verði lögð fram tillaga um breytingu á stjórnarskránni þess eðlis að breytingar á stjórnarskrá verði bornar undir þjóðaratkvæði. Stefnt skal að því að stjórnlagaþing verði kallað saman sem fyrst og tillögur þess að nýrri stjórnarskrá verði lagðar fyrir þjóðina. Stjórnlagaþing skal ekki vera skipað núverandi eða fyrrverandi alþingismönnum, ráðherrum eða formönnum stjórnmálahreyfinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Ætlum að opna fleiri verslanir

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Ætlum að opna fleiri verslanir
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Eftirlit í þágu milliliða – hver fylgist með eftirlitsmönnunum?

Svarthöfði skrifar: Eftirlit í þágu milliliða – hver fylgist með eftirlitsmönnunum?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sítengd og stimpluð

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sítengd og stimpluð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Stjórnarskráin og ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Stjórnarskráin og ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni