fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Eyjan

Marinó: Gróf sögufölsun

Egill Helgason
Laugardaginn 5. febrúar 2011 13:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marinó Gunnar Njálsson skrifar þarfa ádrepu þar sem hann deilir á þá söguskoðun – sem er búið að ýta á flot og er ætlað að verða viðtekin sannindi – að það hafi verið einhver ógurleg stjórnviska hjá yfirvöldum á Íslandi að láta bankana fara í þrot. Eins og Marinó segir er það öðru nær:

Marinó skrifar meðal annars:

„Það er bull að bönkunum hafi verið leyft að falla.  Hér rembdust ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Seðlabanki Íslands undir stjórn Davíðs Oddssonar eins og rjúpan við staurinn í hátt í ár við að halda þessum svikamyllum gangandi.  Leyfðu þeim á meðan að mergsjúga almenning og fyrirtæki í landinu.  Bankarnir féllu þegar úrræði stjórnvalda og Seðlabanka þrutu.  Þegar það kom í ljós að svikin og prettirnir voru svo mikil að þeim var ekki bjargað.  Eftir að stjórnendur og eigendur bankanna höfðu ákveðið að það skipti meira máli að bjarga eigendunum og vildarvinum en ekki bönkunum sjálfum.  þeir féllu út af meðvirkni stjórnvalda, Seðlabanka og Fjármálaeftirlits sem köstuðu sér fyrir fætur fjárglæframönnunum í hvert sinn sem þeir opnuðu munninn og vegsömuðu þá, fóru með fagurgala um grundir til að lýsa snilld þeirra.  Þeir væru misskildir snillingar.  Hefðu fundið töfrauppskriftina sem reyndari bankamenn kunnu ekki vegna þess að þeir væru ekki nægilegir snillingar.

Að Ólafur Ragnar Grímsson komi núna fram í erlendum fjölmiðlum og segi að við hefðum leyft bönkunum að falla er að núa salti í sár almennings sem þarf að bera stríðskostnaðinn á herðum sér.  Stjórnvöld leyfðu þeim vissulega ýmislegt.  Svo sem að vaða yfir almenna viðskiptavini sína á skítugum skónum, að tæma sjóði Seðlabankans, brjóta lög og reglur hægri vinstri, að fella krónuna, að ræna eigin banka innan frá og svona mætti lengi telja.  En að ein vanhæfasta ríkisstjórn Íslandssögunnar, ríkisstjórn Geirs H. Haarde, hafi leyft bönkunum að falla er fáránlegasta söguskýring sem ég hef heyrt og sýnir að annað hvort er Ólafur Ragnar ekki í neinum tengslum við raunveruleikann eða að hafin er áróðurherferð á alþjóðavísu til að fela fyrir umheiminum vanhæfi allra þeirra sem áttu að gæta þess að bankarnir gerðu ekki það sem þeir gerðu.  Hvítþvotturinn er hafinn, moka á yfir spillinguna og vanhæfið.  Ætli þetta verði líka vörn Geirs H. Haarde fyrir Landsdómi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Arfleifð Egils í Borgarnesi

Óttar Guðmundsson skrifar: Arfleifð Egils í Borgarnesi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?

Þorsteinn Pálsson: Hvers vegna voru tillögur um afturköllun umsóknar svæfðar í tíð Sigmundar Davíðs og Guðlaugs Þórs?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin