Jón Þórisson, einn forsvarsmanna átaksins orkuaudlindir.is sendi síðunni þennan pistil:
— — —
Sæll Egill,
Fyrr í vikunni birtir þú fyrir mig pistil undir fyrirsögninni: Magmamálinu er ekki lokið. Í pistlinum vitnaði ég ítarlega í skýrslu Magmanefndarinnar og sjálfsagt hefur það verið í of löngu máli, því aðeins einn lesandi síðunnar sá ástæðu til þess að kommentera! Allavega vona ég að þetta sé ástæðan, því efnið gefur svo sannarlega tilefni til skoðanaskipta. Ég trúi því ekki að lesendur þínir sé orðnir svo dofnir og sinnulausir af þessu ógeðslega samfélagi að þeir hafi gefist upp á að bæta það.
Eða hvað finnst lesendum um eftirfarandi tilvitnanir í skýrlsu Magmanefndarinnar?
„Þau umskipti í íslenskum orkuiðnaði sem urðu með einkavæðingu Hitaveitu Suðurnesja hf eru sérstaklega umhugsunarverð í ljósi þess að ekki er nóg með að orkulindirnar sem starfsemi fyrirtækisins byggir á hafi verið í sameign, þ.e. í eigu sveitarfélaganna á svæðinu og ríkisins, heldur hefur sú þekking sem er forsenda hagkvæmrar nýtingar þeirra verið byggð upp sem samfélagslegt verkefni.
Við það að yfirráð yfir náttúrulegum auðlindum flyst úr landi færist umtalsvert efnahagslegt vald úr landi og með því pólitískt vald. Á sama tíma minnka möguleikar samfélagsins til að hafa hemil á misskiptingu þess auðs sem verður til í samfélaginu.
Um leið og stærri virkjanir komast í eigu erlendra aðila, þá opnast sá möguleiki að samningar um orkusölu til stóriðju verði í meginatriðum samningsatriði milli erlendra aðila og staða Íslendinga yrði líkari stöðu áhorfenda en leikmanna í slíkri framvindu. Jafnframt er sú hætta fyrir hendi að í auknum mæli myndu hagsmunir erlendra stórfyrirtækja verða ráðandi við uppbyggingu íslensks orkuiðnaðar, bæði orkuvinnslu og stóriðju. Þótt erlend fjárfesting sé jafnan talin jákvæð fyrir efnahagslíf þjóðar þá geta hin jákvæðu áhrif verið skammvinn og sé til lengri tíma litið kann erlend fjárfesting að leiða til skertra kjara fyrir hið staðbundna samfélag“.
Þarf ekki að ræða þetta eitthvað frekar?
Eða ætlum við að gefast upp og láta orð Styrmis Gunnarssonar vera grafskriftina yfir efnahagslegu sjálfstæði okkar?
„Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta“.