fbpx
Þriðjudagur 29.júlí 2025
Eyjan

Vilhjálmur: Vont fyrirkomulag

Egill Helgason
Mánudaginn 13. september 2010 06:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjámur Þorsteinsson skrifar um nauðsyn þess að ráðherrar hafi vit á málaflokknum sem þeir gegna, en á því hefur verið nokkur misbrestur:

„Í umræðu dagsins um Landsdóm rifjast upp hvað getur gerst, og gerist, þegar dýralæknar verða fjármálaráðherrar og sagnfræðingar viðskiptaráðherrar (aftur með fullri virðingu fyrir þeim ágætu mönnum sem þau embætti skipuðu).  Vandinn er ekki beinlínis þeirra heldur kerfisins sem ýtti þeim upp í stöður sem þeir réðu ekki við, sbr. Peters-lögmálið.

Sjáum til dæmis þennan útdrátt úr bréfi Björgvins G. Sigurðssonar til þingmannanefndar um ráðherraábyrgð:

Það er engum greiði gerður, hvorki tilvonandi ráðherrum né þjóðinni, með því fyrirkomulagi sem hér hefur viðgengist.  Á því verður að gera róttækar endurbætur og breytingar.“

— — —

Vilhjálmur leggur til að miklar breytingar verði gerðar á stjórnskipuninni, meðal annars með því að forsætisráðherra verði kosinn beinni kosningu. Vilhjálmur starfaði í Bandalagi jafnaðarmanna í eina tíð og þessar hugmyndir eru í anda Vilmundar Gylfasonar:

„Forsætisráðherra á helst að kjósa beinni kosningu. Hún eða hann velur ráðuneyti sitt, gjarnan fyrir kosningar.  Þingmenn geta ekki jafnframt verið ráðherrar.  Ráðuneyti eru þá skipuð fólki með fagþekkingu, gott orðspor og dómgreind; reynslumikið fólk af viðkomandi sviðum.  Þetta er svipað því sem tíðkast í Frakklandi og Bandaríkjunum.

Samhliða þarf að breyta störfum þingsins og gera það mun öflugra og sjálfstæðara sem stefnumótandi vettvang pólitískrar rökræðu.  Þingið á, með lagasetningu og ályktunum sínum, að setja ríkisstjórninni ramma og stefnu hverju sinni.  Jafnframt á það að hafa gott eftirlit með framkvæmdavaldinu og stjórnsýslunni.  Það má hugsa sér að til verði sérstakur stjórnsýsludómstóll að franskri fyrirmynd; embætti Umboðsmanns Alþingis er vísir að þessu en þyrfti að efla og gefa aukna vigt.

Í þessa átt eigum við að breyta stjórnarskránni í kjölfar stjórnlagaþingsins næsta vor.  Þessi kerfisbreyting ein og sér myndi gjörbreyta framtíðarhorfum á okkar ágæta landi til hins betra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“

Jón Gnarr tjáir sig um besta vininn – „Vekur gjarnan aðdáun og áhuga hjá fólki“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“

Vilhjálmur vill vísa árásármanni Eyþórs úr landi – „Þessi framkoma gagnvart okkar friðsæla samfélagi er til skammar“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Aðdáun á fornköppum

Björn Jón skrifar: Aðdáun á fornköppum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Þingmaður Sjálfstæðisflokksins erfingi milljarða og lítur niður á þá sem minna eiga

Orðið á götunni: Þingmaður Sjálfstæðisflokksins erfingi milljarða og lítur niður á þá sem minna eiga
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmar Guðmundsson: Veit ekki hvað formaður Sjálfstæðisflokksins er að fara með hótunum sínum – hér urðu valdaskipti

Sigmar Guðmundsson: Veit ekki hvað formaður Sjálfstæðisflokksins er að fara með hótunum sínum – hér urðu valdaskipti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Tóm leiðindi

Óttar Guðmundsson skrifar: Tóm leiðindi