Eins og hefur verið bent á hér á síðunni er málsvörn stjórnmálamanna helst sú þessa dagana annars vegar að ekkert hafi verið hægt að gera til að bjarga íslenska efnahagslífinu eftir 2006 og hins vegar að þetta sé allt bankamönnunum – og Jóni Ásgeiri – að kenna. Gunnar Smári Egilsson (það er óþarfi að geta þess í athugasemdum að hann hafi spilað með útrásarliðinu, það er alkunna) skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann fjallar um þennan málflutning. Segir meðal annars:
„Og við hin ættum að hafa hugfast að þótt niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis á hruni bankanna væri að stjórnendur bankanna bæru mesta ábyrgð á falli þeirra; þá er ekki þar með sagt að þessir stjórnendur bankanna beri mesta ábyrgð á falli íslensks efnahagslífs. Það fall var í boði íslenskra stjórnmálamanna. Það var ráðherranna að fylgjast með þróun mála og bregðast við. Útlánaaukning banka í kjölfar einkavæðingar var fyrirsjáanleg og hefði ekki orðið taumlaus og skaðleg nema sökum þess að þeir sem fóru með efnahagsstjórnina voru ábyrgðarlausir lýðskrumarar sem böðuðu sig í skammvinnri gleði almennings yfir innistæðulausri velsæld. Stærsta bóla heimsögunnar hefði ekki þanist út á Íslandi nema fyrir útreiknað mat stjórnmálamanna á hag sínum af þenslunni. Þeir mátu að ávinningur sinn af almennri velsældartilfinningu og auðsöfnun væri áhættunnar virði. Ímyndað góðæri myndi halda þeim við völd – um sinn að minnsta kosti.
Það hafa margir hag af því að yfirfæra niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis yfir á samfélagið allt. Þegar litið er yfir fréttir haustsins af þrotarekstri sveitarfélaga, gjaldþroti orkufyrirtækja, skuldasöfnun heimila, fyrirtækja, trillukarla, bænda og safnaðarfélaga, töpuðum lífeyri, draugahverfum upp um allar heiðar, höfn sem byggð er á sandi – þá er erfitt að kyngja þeirri kenningu að þetta sé allt Jóni Ásgeiri að kenna. Eða Sigurjóni Árnasyni. Og allir aðrir séu saklausir. Og vinir Jóhönnu saklausastir allra“.