Það eru ýmis ummæli sem koma til greina þessa vikuna. En eftirfarandi orð Styrmis Gunnarssonar úr skýrslu rannsóknarnefndar hljóta að koma sterkt inn:
„Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“