Það er alveg rétt sem Eiríkur Bergmann Einarsson segir í pistli: Amatörisminn virðist hafa verið algjör í íslenska stjórnkerfinu.
Rannsóknarnefnd Alþingis horfir til ýmissa þátta. Hún gagnrýnir meðal annars hagstjórnina, ofþenslu og ójafnvægi. Tekur sérstaklega dæmi um skattalækkanir á þenslutímum og breytingar á útlánareglum Íbúðalánasjóðs sem hafi verið með stærstu hagstjórnarmistökunum.
Öldungurinn Jónas Haralz sagði ekki alls fyrir löngu að hér hefði ekki verið nein raunveruleg hagstjórn um langt skeið.
Rannsóknarnefndin hafnar því líka, eins og Eiríkur bendir á, að íslenska hagkerfið hafi verið fórnarlamb utanaðkomandi árásar – þetta er hin svokallaða umsáturskenning.
Vandinn er að miklu leyti heimatilbúinn, líkt og Bjarni Benediktsson viðurkenndi í þingræðu í dag – meira að segja kemur í ljós að ekki var svarað tilboði frá breska seðlabankanum í apríl 2008 um aðstoð erlendra seðlabanka við að vinda ofan af hinu alltof stóra íslenska bankakerfi.