fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025

Giftur hjúkrunarfræðingur heldur framhjá þegar hún segist vera á næturvöktum – „Með honum hófst alvöru framhjáhald“

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 5. ágúst 2020 22:00

Skjáskot frá The Sun

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skosk hjúkrunarkona sem gengur undir nafninu Chloe greinir frá því í samtali við The Scottish Sun hvernig hún hefur notað næturvaktir sem afsökun til að halda framhjá eiginmanni sínum.

Chloe er 32 ára tveggja barna móðir sem hefur verið með eiginmanni sínum síðan hún var 16 ára. Hún segir að hún hafi verið að stunda kynlíf með öðrum mönnum til að fá spennu í líf sitt.

Hún segist hafa tekið pásu í framhjáhaldinu á meðan að heimsfaraldur Kórónaveiru var sem mestur, en nú sé hún byrjuð aftur, þegar að smitaðir á spítölum eru færri.

„Ég var orðin frekar þreytt á þessu og hélt að lífið hefðu upp á meira að bjóða. Ég hafði verið með eiginmanninum síðan við vorum í skóla. Við höfðum vaxið frá hvoru öðru og vorum á marga vegu mjög ólíkar manneskjur.“

„Hann langar alltaf að gera sama gamla og er mjög fastur í sínum þægindaramma. Á meðan er ég enn að leita að nýjum upplifunum, auk þess sem ég þarfnast frekari líkamlegrar athygli.“

„Við eigum tvö börn saman svo að ég myndi ekki segja að ég hygðist fara frá honum. Þá væri ég að ganga of langt. Mig langar bara í meiri spennu.“

Chloe segist fyrst og fremst hafa verið að halda framhjá með giftum tryggingasölumanni sem gengur undir nafninu Sean. Þau eiga að hafa kynnst á skyndikynnasíðunni IllicitEncounters.com.

„Ég hafði verið ótrú eiginmanni mínum nokkrum sinnum áður. Það hafði aðallega verið einnar nætur gaman, með gæjum sem ég hitt á næturklúbbum og börum. En með honum hófst alvöru framhjáhald. Við hittumst og fengum okkur drykk og svo fórum við á hótelið og stunduðum kynlíf.“

„Það var næs að finna aftur fyrir spennunni sem maður upplifir þegar maður deitar einhvern í fyrsta skipti. Þetta minnti mig á fyrstu stefnumót mín og eiginmanns míns. Við létum eins og táningar. Ég hef ekki kysst eiginmann á þann hátt í mörg ár.“

„Svo var kynlífið allt öðruvísi með Sean heldur en heima. Með honum var sérstakt tilefni og kynlífið var miklu betra og meira spennandi.“

„Við hittumst á tveggja vikna fresti og þá var alltaf eitthvað sem ég hlakkaði til að gera. Starfið mitt hentaði vel til að sinna þessu. Ég útskýrði fyrir eiginmanni mínum að ég væri á næturvakt, en svo eyddi ég nóttinni með hinum á hóteli. Og þar sem að ég er oft á næturvöktum þá grunar eiginmanninn ekkert.“

Chloe segist hafa þurft að slíta sambandi sínu með Sean þegar hann sagði henni að eiginkonan sín væri ólétt.

„Óléttan breytti öllu og ég sagði Sean að þetta væri búið.“

Hún segist þó vera byrjuð aftur á IllicitEncounters.com og er farin að spjalla við aðra menn. Hún segist vera að fara að hitta nýjan mann á næstunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Fjögurra barna móðir skotin til bana – fór á rangt heimili í vinnunni

Fjögurra barna móðir skotin til bana – fór á rangt heimili í vinnunni
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Varahéraðssaksóknari handtekinn fyrir utan skemmtistað í ágúst og gisti í fangageymslu

Varahéraðssaksóknari handtekinn fyrir utan skemmtistað í ágúst og gisti í fangageymslu
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Hafnarfjarðarbær mátti afturkalla úthlutun lóðar þegar uppbygging hófst ekki innan tilskilins tíma

Hafnarfjarðarbær mátti afturkalla úthlutun lóðar þegar uppbygging hófst ekki innan tilskilins tíma
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ivan Toney vill aftur til Englands í janúar – Hans gamli stjóri opnar dyrnar

Ivan Toney vill aftur til Englands í janúar – Hans gamli stjóri opnar dyrnar
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum
Nova flytur á Broadway
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Skildi ekkert í fáklæddu konunni við Skógafoss

Skildi ekkert í fáklæddu konunni við Skógafoss
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Carragher meinaður aðgangur að heimavelli City í vikunni – UEFA og City vilja ekki tjá sig

Carragher meinaður aðgangur að heimavelli City í vikunni – UEFA og City vilja ekki tjá sig
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot

Í þriggja ára bann frá leikjum eftir hómófóbísk orð um leikmenn Chelsea og Diogo Dalot
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Alveg kominn með nóg af þessu eftir tónleika Mugison og Sinfó: „Svo mikil tilgerð“

Alveg kominn með nóg af þessu eftir tónleika Mugison og Sinfó: „Svo mikil tilgerð“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.