fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

5 algengustu hlutirnir sem karlmenn hugsa um þegar þeir fróa sér

Ragnheiður Eiríksdóttir
Laugardaginn 25. maí 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hei, vissir þú að maímánuður er mánuður sjálfsfróunar í Bandaríkjunum? Í tilefni þess efndi kynlífsleikfangaverslunin Lovehoney til könnunar á þvi hvað fólk hugsar um þegar það á ástarstund með sjálfu sér. Í könnuninni tóku 4500 manns þátt, karlar og konur.

Lesendur ættu að vita flest um kostina við það stunda sjálfsfróun – en góða vísu má kveða aftur og aftur, og aftur, já og aftur… og einusinni enn!

„Það er endalaust hægt að finna góðar ástæður fyrir því að fróa sér,“ sagði Vanessa Marin, kynlífsráðgjafi í samtali við Bustle. „Þú lærir líka hvernig þú getur kennt einhverjum öðrum að veita þér unað.“

Sem betur fer virðist sambandsstaða ekki hafa mikil áhrif á sjálfsfróun en í könnun Lovehoney kom í ljós að 59% karla og 51% kvenna í samböndum stunda hana. Ekki undarlegt – enda er hún fyrirtaks meðal gegn streitu og fullkomin aðferð til að gera eitthvað gott fyrir sjálfan sig.

En hvað hugsar fólk á meðan það fróar sér – það var eitt af því athyglisverða sem könnunin leiddi í ljós. Hvaða fantasíur eru spilaðar í hugarfylgsnum okkar þegar greddan tekur völd?

Það kemur kannski einhverjum á óvart hversu stórt hlutverk minningar virðast leika!

1. Kynlíf með núverandi félaga/maka

„Oh, þegar við nutumst úti á akrinum í síðustu viku…“

Æ, en sætt! Það kemur í ljós í könnuninni að 69% karla hugsa um núverandi bólfélaga á meðan þeir njóta ásta með sjálfum sér. Athygli vekur að aðeins 60% kvenna segja að þetta sé þeim efst í huga.

2. Kynlíf með fyrrverandi félaga/maka

58% karlmanna ferðast aftur í tímann og leiða hugann að minningum um kynlíf með einhverjum úr fortíðinni. Rúnkbankinn er mikilvægur.

3. Erótískar senur af netinu

„Gaur, hvernig snúa þau?“

Var ekki internetið fundið upp fyrir klám? 57% karlmanna segjast hugsa um eitthvað sem þeir hafa fundið á netinu.

4. Hlutverkaleikir í kynlífi

Rúmur þriðjungur karlmanna, eða 32%, hugsa um hlutverkaleiki. Það er nú ekkert undarlegt, enda möguleikarnir endalausir. Lögga og bófi, flugkona og flugþjónn, húsfaðir og póstburðarkona, lamb og slátrari…

5. Kynlíf sem inniheldur BDSM

Já sveimérþá það er um þriðjungur karla sem lætur sig dreyma um BDSM senur. Reyndar voru konurnar fleiri, um 34%.


Byggt á grein Bustle

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433
Fyrir 18 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.