fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Til strákanna sem fitusmánuðu mig með því að gera grísahljóð þegar ég gekk framhjá

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 2. maí 2019 19:30

Mynd sem hún deilir með textanum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar ég var sextán ára þróaði ég með mér átröskun (lystarstol). Ég glímdi líka við þunglyndi og sjálfskaða. Síðustu fjögur ár hef ég verið í nokkrum meðferðum. Ég er ekki alveg búin að ná bata en ég er komin lengra niður bataveginn heldur en ég hef einhvern tíma gert áður. Í gær gerðist svolítið fyrir mig sem lætur mig hugsa mikið og gerir mig mjög kvíðna. Þetta var svo lítill hlutur en það var eins og sprengja fyrir mér. Ég ákvað að skrifa skilaboð til strákanna sem fitu-smánuðu (e. fat-shamed) mig,“ skrifar ein kona í færslu á Bored Panda. Hún fer undir nafninu @recoveryforeva á Twitter og Bored Panda þar sem hún deilir skilaboðunum til strákanna.

@recoveryforeva

Lestu skilaboðin hennar í heild sinni hér að neðan.

„Ég vil þakka unglingstrákunum sem héldu að það væri fyndið að gera grísahljóð þegar ég gekk fram hjá í gær. Ég áttaði mig ekki aðeins á að það er enn mjög fitufordómafullt fólk þarna úti, þið sýndum mér einnig að ég er ekki enn komin á þann stað sem ég vil vera.

Augnablikið sem ég heyrði í ykkur fór hjartað mitt á fullt. Ég reyndi að láta eðlilega og að gráta ekki. Sjálfseyðingarhugsanir mínar tóku yfir heilbrigða heilann minn og sögðu mér að ég væri ekki neins virði. Hins vegar leyfi ég ykkur ekki að láta mig efast um mig sjálfa.

Já, ég er feit. En ég er mun hamingjusamari en ég hef verið síðastliðin ár. Ég hef glímt við margar átraskanir í næstum fimm ár. Ég hef verið allt of létt og við dauðans dyr, neydd inn á spítala. Ég týndi sjálfri mér og styrknum til að lifa.

Þessa dagana er ég feit. Ég er þakin örum á líkamanum og ég glími enn við átröskun, ofát. Ég glími einni við önnur andleg veikindi. En ég er á mikið betri stað í dag heldur en ég var.

Ég get farið í skóla, mætt til vinnu og endurheimt sjálfsöryggi mitt. Fyrst var ég aðeins til, nú er ég að komast af og bráðum mun ég lifa. Ég vil vera hraust aftur, því ég þarf hraustan líkama til að leitast eftir þeim ævintýrum sem mig langar .

Hins vegar, ef að léttast þýðir að ég er að skaða andlegu heilsu mína, þá mun ég ekki gera það. Það er ekki þess virði. Ég sé loksins ljós í enda ganganna og ég ætla ekki bara að vera sátt við mína stærð, heldur einnig líf mitt. Ég er að taka líf mitt til baka úr höndum andlegrar veiki minnar.

Þannig takk fyrir að gefa frá ykkur grísahljóð. Þið létuð mig ekki aðeins átta mig á því að ég ætti langan veg framundan þar til mér líður vel í eigin skinni, en þið létuð mig einnig styrkja viljastyrk minn.

Ég vil normalísera umræðu um andlega heilsu og fræða fleiri um erfiðin á bakvið ósýnilegan sjúkdóm. Þið gáfuð mér tilgang.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hefur ítrekað reynt að taka samtalið en því er alltaf hafnað

Hefur ítrekað reynt að taka samtalið en því er alltaf hafnað
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.