fbpx
Miðvikudagur 07.maí 2025
Fréttir

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir lyfjaþjófnað á Landspítalanum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 13. febrúar 2025 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem var í starfi hjúkrunarfræðings á Landspítalanum var í gær sakfelld fyrir þjófnað og brot í opinberu starfi.

Brot konunnar fólust í  því að hafa á tímabilinu 9. september 2021 til 28. febrúar 2022, á réttar- og öryggisgeðdeild Landspítalans við Hringbraut í Reykjavík, stolið úr lyfjaskáp samtals 21 töflu af bensódíazepin lyfinu Temesta (Lorazepam). Konan var þá starfandi á deildinni.

Brot konunnar varðar 1. málsgrein 244. greinar almennra hegningarlaga, en þar segir: „Þjófnaður á fjármunum eða orkuforða varðar fangelsi allt að 6 árum.“

Í 138. grein almennra hegningarlaga er síðan kveðið á um brot opinberra starfsmanna í starfi og segir þar: „Nú hefur opinber starfsmaður gerst sekur um refsilagabrot með verknaði, sem telja verður misnotkun á stöðu hans, og við því broti er ekki lögð sérstök refsing sem broti í embætti eða sýslan, þá skal hann sæta þeirri refsingu, sem við því broti liggur, en þó svo aukinni, að bætt sé við hana allt að helmingi hennar.“

Dómur yfir konunni var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og var hún dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Umdeilt 200 milljóna króna listaverk á að rísa í Vestmannaeyjum

Umdeilt 200 milljóna króna listaverk á að rísa í Vestmannaeyjum
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Engar eignir fundust í gjaldþrota félagi Gumma kíró – „Þetta er heil­mik­ill lær­dóm­ur“

Engar eignir fundust í gjaldþrota félagi Gumma kíró – „Þetta er heil­mik­ill lær­dóm­ur“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Marjorie Taylor Green gagnrýnir Trump harðlega – „Ég er pirruð“

Marjorie Taylor Green gagnrýnir Trump harðlega – „Ég er pirruð“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Útlínur sigurs okkar eru nú þegar augljósar“ segir ráðgjafi Pútíns – En vikan verður Rússum erfið

„Útlínur sigurs okkar eru nú þegar augljósar“ segir ráðgjafi Pútíns – En vikan verður Rússum erfið