fbpx
Þriðjudagur 06.maí 2025
Fréttir

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. janúar 2025 04:13

Úkraínskir hermenn. Mynd/Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úkraínski herinn hefur viðurkennt að stór vandamál hafi komið upp hjá 155. vélvæddu herdeildinni vegna margra liðhlaupa og lélegrar stjórnunar. Þegar kíkt er undir yfirborðið, er málið dæmi um eitt af stærstu vandamálum Úkraínumanna.

Herdeildin átti að vera fyrsta stóra úkraínska herdeildin sem hlyti þjálfun erlendis. Hún átti að fá fullkomnustu vopnin og þjálfun samkvæmt NATÓ-standördum. Þetta átti að vera hluti af því að snúa gangi stríðsins Úkraínu í vil.

En áður en herdeildin hleypti svo mikið sem einu skoti af á vígvellinum hafði þriðjungur hermannanna, sem áttu að vera 5.000-6.000 talsins, stungið af eða verið fluttir til annarra herdeilda.

Herinn viðurkennir nú að vandamál hafi komið upp með herdeildina og að lærdómur verði dreginn af þessu.

2.000 menn úr herdeildinni voru sendir í fjögurra mánaða þjálfun í Frakklandi síðasta vor. Þá fóru vandamálin strax að gera vart við sig því 50 af hermönnunum létu sig hverfa.

Þegar þjálfuninni var lokið og herdeildin var send á vígvöllinn í nóvember, komu enn fleiri vandamál upp.

Censor.net, sem er vefsíða rekin af gömlum úkraínskum stríðsfréttamanni, segir að herdeildin hafi verið send til orustu án þess að hafa dróna eða annan búnað til rafræns hernaðar. Síðan var byrjað að taka hermenn úr herdeildinni til að fylla í skörð í öðrum herdeildum. Þess utan voru franskar fallbyssur sendar til annarra herdeilda til að fylla upp í skörð hjá þeim.

Censor.net segir að áður en herdeildin hleypti fyrsta skotinu af hafi 1.700 af liðsmönnum hennar annað hvort verið búnir að stinga af eða komnir til annarra herdeilda.

Gripið var til þess ráðs að reka yfirmenn herdeildarinnar en þetta leysti ekki stjórnunarvandann og þegar herdeildin lenti loks í bardögum við Pokrovsk varð hún fyrir miklu mannfalli vegna fyrrgreindra vandamála.

Le Monde sagði í byrjun árs að herdeildin hafi nú verið leyst upp og hermennirnir sendir til annarra herdeilda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Spessi ætlaði að verða barnfóstra en er einn þekktasti ljósmyndari landsins – „Ég hafði ekki mikla trú á mér“

Spessi ætlaði að verða barnfóstra en er einn þekktasti ljósmyndari landsins – „Ég hafði ekki mikla trú á mér“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sagðist vera leppur en dró allt til baka og beið svara í átta ár – Viðurkenndi leppun fyrir dómi

Sagðist vera leppur en dró allt til baka og beið svara í átta ár – Viðurkenndi leppun fyrir dómi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bónus hefur afhent 500 nýfæddum börnum Barnabónus

Bónus hefur afhent 500 nýfæddum börnum Barnabónus
Fréttir
Í gær

Ferðamaður óttast að gera Íslendinga reiða með því að panta hvalkjöt – „Þetta er ekki einu sinni gott“

Ferðamaður óttast að gera Íslendinga reiða með því að panta hvalkjöt – „Þetta er ekki einu sinni gott“
Fréttir
Í gær

Ísraelsmenn ætla að hernema Gasaströndina

Ísraelsmenn ætla að hernema Gasaströndina
Fréttir
Í gær

Ágústa mætir í dómsal til að styðja þolanda Vopnafjarðarhrottans – „Hvers vegna lítur dómskerfið á þessi ofbeldisverk svo ofboðslega vægum augum?“

Ágústa mætir í dómsal til að styðja þolanda Vopnafjarðarhrottans – „Hvers vegna lítur dómskerfið á þessi ofbeldisverk svo ofboðslega vægum augum?“