fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Arkitekt um þéttingarreiti í Reykjavík: „Ekki skrýtið að fólk sé að upplifa kulnun og streitu“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. desember 2024 07:59

Útsýnið úr einni af íbúðunum í Suður-Mjódd. Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skipulagsstefna Reykjavíkurborgar virðist vera umdeild innan arkitektastéttarinnar ef marka má umfjöllun sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Þar er til dæmis rætt við arkitekt sem segir að mikið hafi verið lagt upp úr friðsæld, útsýni og sólarljósi þegar hann var í námi en nú finnist honum fólk „haft eins og búrhænsni“.

Kveikjan að umfjöllun Morgunblaðsins er umræða um vöruhúsið í Suður-Mjódd og nálægð þess við íbúðabyggingu á svæðinu. Blaðið ræddi til dæmis við Pál Jakob Líndal umhverfissálfræðing í vikunni og sagði hann að borgin hljóti að vera komin í þrot með þéttingarstefnu sína. Dæmin um mjög þétta byggð eru mun fleiri.

Arkitektar – sumir að minnsta kosti –  virðast taka undir þetta en í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að þeir hefðu ekki viljað koma fram undir nafni af ótta við að það kynni að skerða starfsmöguleika þeirra.

„Mér finnst hræðilegt hvað það er verið að byggja nærri umferðaræðum,“ segir arkitektinn sem Morgunblaðið ræddi við og bætti við að höfð væri minnsta mögulega fjarlægð milli húsa þannig að fólk horfir á milli glugga.

„Það er ekki skrítið að fólk sé að upplifa kulnun og streitu ef híbýlin eru ekki lengur mannsæmandi, alltof lítil og dimm,“ segir hann og nefnir að áður fyrr hafi tveggja herbergja íbúðir jafnan verið um 70 fermetrar en í dag sé algengt að þær séu um 50 fermetrar. Þá séu svalir hafðar litlar og jafnvel látnar snúa í norður sem áður fyrr hvarflaði ekki að nokkrum manni.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast