fbpx
Fimmtudagur 30.október 2025
433Sport

Árni fær ískaldar kveðjur úr Breiðholtinu eftir ákvörðun sína í gær – Einum aðila virðist langa að beita hann ofbeldi

433
Fimmtudaginn 17. október 2024 11:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn ÍR eru reiðir, í reynd brjálaðir yfir því að þjálfari liðsins Árni Freyr Guðnason hafi ákveðið að hoppa frá borði til að taka við Fylki.

Fylkir staðfesti ráðningu á Árna í gær en aðeins eru örfáar vikur síðan Árni skrifaði undir nýjan samning við ÍR.

ÍR og Fylkir leika í Lengjudeildinni næsta sumar en Fylkir er fallið úr Bestu deildinni þegar tvær umferðir eru eftir.

Stuðningsmenn ÍR hafa frá því í gærkvöldi lesið yfir Árna á samfélagsmiðlum, einn þeirra virðist vilja taka í hann ef marka má myndband sem birt er með.

Árni sem er 38 ára gamall hefur undanfarin ár verið þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR og náð þar mjög eftirtektarverðum árangri. Haustið 2023 ávann ÍR sér keppnisrétt í Lengjudeildinni.

ÍR liðið endaði í fimmta sæti Lengjudeildarinnar núna í sumar og ávann sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni um laust sæti í Bestu deildinni þar sem liðið féll úr leik fyrir liði Keflavíkur. Áður en Árni tók að sér þjálfun hjá ÍR hafði hann um árabil verið yfirþjálfari yngri flokka hjá uppeldisfélagi sínu, FH.

Árni er spenntur fyrir því að taka til starfa. „Það er mikill heiður fyrir mig að snúa aftur til Fylkis og að fá nú tækifæri til að þjálfa Fylkisliðið. Mitt mat er að það sé mjög mikið spunnið í liðið og með vinnusemi og metnað að leiðarljósi er ég sannfærður um að við munum skila góðri frammistöðu í framtíðinni. Hér í Árbænum eru aðstæður til fyrirmyndar og ég hlakka til að hefja störf fyrir Fylki,“ sagði Árni eftir ráðningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fyrrum stórstjarna skiptir enn og aftur um vinnu

Fyrrum stórstjarna skiptir enn og aftur um vinnu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Horfa til Haaland sem útilokar ekki að skipta yfir

Horfa til Haaland sem útilokar ekki að skipta yfir
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Glódís með netta pillu: „Fyrst það er búið að eyða svona miklum peningum er svolítið skrýtið að það sé ekki hægt að nota völlinn“

Glódís með netta pillu: „Fyrst það er búið að eyða svona miklum peningum er svolítið skrýtið að það sé ekki hægt að nota völlinn“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Mynd af matnum sem var til sölu vekur óhug – „Myndi ekki gefa hundi þetta“

Mynd af matnum sem var til sölu vekur óhug – „Myndi ekki gefa hundi þetta“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Meiðslavandræði Tottenham aukast – Tíu leikmenn fjarverandi

Meiðslavandræði Tottenham aukast – Tíu leikmenn fjarverandi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þorsteinn gerir enga breytingu

Þorsteinn gerir enga breytingu