Gunnar Smári sagði frá því í gær að hann hefði stokkið glorsoltinn inn á hamborgarastað rétt fyrir klukkan 16 þar sem hann var ekki búinn að borða neitt allan daginn. Segist hann hafa freistast til að velja tvöfaldan hamborgara með frönskum og gosi og var hann rukkaður um 4.160 krónur.
„Það er $30,33. Sá sem reyndi að selja hamborgara á rúma 30 dollara yrði líklega fréttaefni í öðrum löndum, hér er þetta talin normal hegðun,“ segir hann og bætir við að þetta væri að líkindum eðlilegt verð ef lágmarkslaun hér á landi væru töluvert hærri.
Sem fyrr segir vakti færsla Gunnars Smára töluverða athygli og sitt sýnist hverjum. Ýmsir tóku undir með honum um að þetta væri býsna hátt verð og tók einn fram að hamborgarar, sem margir telja „sjoppufæði“, séu verðlagðir eins og steikur eða máltíð á veitingahúsi.
Aðrir bentu þó á að verðið á sambærilegri máltíð í löndum sem við berum okkur gjarnan saman við sé ekki mikið lægra. „Hamborgari, franskar og Coke kostar 3.856,- kr á 5Guys í Bretlandi,“ sagði einn á meðan annar benti á að hamborgaramáltíð á Jensens Böffhus í Kaupmannahöfn kosti svipað og það fyrir utan gosið.