Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að maðurinn hefði klifrað um 30 til 40 metra hæðarmetra upp bratt gil og treysti hann sér ekki niður aftur.
„Verkefnið var krefjandi og reyndi á klifurfærni björgunarfólks á bröttustu köflunum en auk þess var mikil grjóthrunshætta niður gilið,“ segir í tilkynningunni.
Björgunarfólk fór upp fyrir manninn, setti upp línur og seig niður til hans þar sem hægt var að tryggja hann í línu og aðstoða niður.
Að sögn Landsbjargar var maðurinn nokkuð kaldur og skelkaður þegar niður var komið, en þó feginn að komast úr brattlendinu. Verkefnið tók rúma 4 tíma og alls voru 8 félagar sem tóku þátt.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir teknar í aðgerðinni.