fbpx
Föstudagur 06.febrúar 2026
Fréttir

Sóttu slasaðan ferðamann á Borgarvirki

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 1. ágúst 2024 21:32

Frá björgunaraðgerðunum í dag. Mynd: Landsbjörg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í voru björgunarsveitir á Blönduósi og Hvammstanga boðaðar út vegna ferðamanns sem hafði slasast efst í Borgarvirki.

Borgarvirki er gamall gostappi, hamrabelti milli Vesturhóps og Víðidals.

Ferðamaðurinn þurfti flutning í sjúkrabörum niður af klettaborginni. Sjúkraflutningar fóru einnig á staðinn.

Þegar útkallið barst þótti ástæða til að senda björgunarsveitir í forgangsakstri á staðinn.

Þegar björgunarfólk var komið á staðinn varð ljóst að betur hafði farið en leit út um tíma. Búið var um hinn slasaða í sjúkrabörum og hann borinn niður klettaborgina að göngustíg og tröppum síðasta spöl og í sjúkrabíl sem flutti viðkomandi til aðhlynningar á næstu heilsugæslustöð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Tekinn með hnífa í sundi og Hagkaup

Tekinn með hnífa í sundi og Hagkaup
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Árni Stefán lýsir raunum vinar síns: „Ætlar að ganga út þegar hann er stöðvaður af öryggisverði“

Árni Stefán lýsir raunum vinar síns: „Ætlar að ganga út þegar hann er stöðvaður af öryggisverði“
Fréttir
Í gær

Segir siðanefndarmálið á Bifröst toppinn á ísjakanum og að ýmsar beinagrindur séu nú að koma í ljós – „Ætli ég verði ekki næst?“

Segir siðanefndarmálið á Bifröst toppinn á ísjakanum og að ýmsar beinagrindur séu nú að koma í ljós – „Ætli ég verði ekki næst?“
Fréttir
Í gær

Fengu áfall þegar gamlar smálánaskuldir vöknuðu aftur í heimabankanum um mánaðamótin – „Er þetta löglegt?“

Fengu áfall þegar gamlar smálánaskuldir vöknuðu aftur í heimabankanum um mánaðamótin – „Er þetta löglegt?“