fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Kynlíf, valdabarátta, mútur og svik – Hneykslismálin innan rússneska hersins taka engan enda

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 5. júní 2024 04:04

Andrey Belousov. Mynd:The Council of the Federation of the Federal Assembly of the Russian Federation

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sannkölluð flóðbylgja ásakana um mútur og fjársvik rússneskra hershöfðingja sem og dularfullur leki á tölvupóstum, sem varpa meðal annars fram efasemdum um kynlífsmóral nýja varnarmálaráðherra landsins, virðast vera að breyta valdajafnvæginu innan rússneska kerfisins. En enn sem komið er hefur þetta ekki orðið til þess að einhverjir hinna fjöldamörgu valdahópa í Moskvu séu farnir að hvika frá stuðningnum við stríðið í Úkraínu.

Það kom mjög á óvart þegar Vladímír Pútín, forseti, skipti varnarmálaráðherra sínum síðustu 12 árin, Sergei Shoigu, út og setti hagfræðinginn Andrei Belousov í embættið. En það voru kannski ákveðnir fyrirboðar að þessari breytingu því tveimur viku áður var Timur Ivanon, varavarnarmálaráðherra, handtekinn. Hann hafði gegnt stöðunni síðustu átta árin og bar meðal annars ábyrgð á rekstri fasteigna hersins og herbúðum í Úkraínu. Er hann grunaður um spillingu.

Það fór svo sem ekki leynt að hann og fjölskylda hans lifðu í vellystingum. Þau áttu meðal annars 1.600 fermetra sumarhús á vinsælu svæði vestan við Moskvu. Þau áttu einnig hús í Moskvu og leigðu einbýlishús í Saint-Tropez á frönsku ríveríunni fyrir að minnsta kosti 850.000 evrur.

Þau áttu einnig Rolls-Royce, Bentley og Aston Martin bíla að því er segir í nýlegri úttekt samtaka Aleksei Navalny en þau berjast gegn rússneskum stjórnvöldum og spillingunni sem einkennir rússnesk stjórnmál.

Þetta verður að teljast ágætur lífsstíll hjá embættismanni sem var með sem svarar til um 20 milljóna íslenskra króna í árslaun.

Í kjölfar ráðherraskiptanna hafa háttsettir herforingjar verið handteknir og rannsókn stendur yfir á málum fjölmargar starfsmanna hersins og varnarmálaráðuneytisins.

Shoigu var komið fyrir sem ritara öryggisráðs Pútíns. Það er mikilvægt ráð sem sér um samhæfingarstarf en þykir ekki valdamikið.

Nýi ráðherrann

Belousov, sem er 65 ára, er þekktur innan rússneska stjórnkerfisins en hann hefur gegnt nokkrum lykilembættum.

Almenningur þekkti kannski ekki svo mikið til hans áður en hann tók við embættinu en sumir höfðu þó væntanlega heyrt um þennan duglega teknókrata og fróman meðlim rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.

En nýlega birtist grein í Dossier, sem er rússneskur miðill sem er starfræktur utan Rússlands, þar sem þessari mynd af Belousov er hnekkt.

Dossier hafði aðgang að fjölda tölvupósta Belousov og segir að einkalíf hans sé nú ekki eins slétt og fellt og hann heldur fram. Hann hefur átt eignir utan Rússlands og innistæður í bönkum í ESB.

En það vekur kannski mesta athygli að árum saman virðist hann hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að fjármagna rekstur Wagner-hópsins.

Hann er kannski ekki eins mikill prinsippmaður og hann lætur í skína. Dossier segir að hann hafi í gegnum árin veitt mörgum ástkonum sínum stöðuhækkun og komið ættingjum sínum í mjög vellaunuð embætti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast