fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Slæmar fréttir fyrir Rússland – Úkraínumenn afhjúpa nýja sjávardróna

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. febrúar 2024 04:41

Merki leyniþjónustu úkraínska hersins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úkraínski herinn á engin herskip en samt sem áður hefur honum tekist að fara illa með Svartahafsflota Rússa.  Úkraínumenn hafa sökkt nokkrum rússneskum herskipum, eyðilagt kafbát sem var í slipp og valdið tjóni á mörgum skipum.

Nýlega lyftu Úkraínumenn hulunni af nýjum sjávardrónum sem þeir hafa þróað og smíðað. Þessir drónar líkjast einna helst sæþotum. Þeir virðast virka vel því nýlega sökktu þeir rússnesku korvettunni Ivanovet með slíkum drónum.

Í nýlegu viðtali við CNN ræddi úkraínskur drónastjórnandi, frá leyniþjónustu úkraínska hersins, um aðgerðina þegar Ivanovet var sökkt. Á svarthvítri myndbandsupptöku frá leyniþjónustunni sést þegar sjávardrónar sigla hratt að korvettunni á meðan áhöfnin reynir að skjóta þá. Síðan fylgja stórar sprengingar þegar drónarnir hæfa skipið. Að lokum sést skipið sökkva.

Drónastjórnandinn sagði CNN að 10 svokallaðir Magura-drónar hafi verið notaðir við árásina. Sex þeirra hafi hæft skipið og sökkt því við vesturströnd Krím sem er hersetinn af Rússum.

Hann sagði að þessir drónar séu aðeins sex metra langir og séu knúðir áfram af mótor eins og eru notaðir í sæþotum. Þrátt fyrir að vera ekki mjög stórir né tæknilega flóknir þá draga þeir allt að 800 km. Þetta drægi gerir Úkraínumönnum kleift að nota drónana til árása í stórum hlutum Svartahafs og meðfram Krim. Þeir geta borið 300 kg af sprengiefni en eftir því sem drónastjórnandinn segir þá dugir að vera með 250 kg, það geri það sem gera þarf þegar dróninn hæfi skotmark sitt.

Drónunum er stýrt í gegnum Internetþjónustuna Starlink sem er í eigu Elon Musk.

Drónarnir eru oft sendir af stað á sjálfsstýringu en þegar þeir nálgast skotmarkið taka drónastjórnendur við stjórninni.

„Það er erfitt að koma auga á drónana, sérstaklega á opnu hafi. Stærð þeirra gerir að verkum að það er erfitt að stýra þeim því hafið er á hreyfingu en það gerir óvininum einnig erfiðara fyrir við að hæfa okkur,“ sagði drónastjórnandinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“