fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
433Sport

Tengdapabbi Mane segir frá því hvernig sambandið hófst – Fjölskyldurnar funduðu saman og þau fóru aldrei á stefnumót fyrir giftingu

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 12. janúar 2024 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sadio Mane vekur athygli þessa dagana eftir að hann giftist 19 ára stúlku frá Senegal. Miðlar þar í landi segja að Mane hafi valið sér hana fyrir þremur árum.

Mane giftist hinni 19 ára gömlu Aisha Tamba um helgina í heimalandi sínu en Mane er 31 árs gamall.

Einnig er sagt frá því í fréttum ytra að Mane hafi greitt skólagjöld hennar á námsárunum.

Mane er í dag leikmaður Al-Nassr í Sádi-Arabíu. Hann var þar áður hjá Bayern Munchen en er auðvitað þekktastur fyrir ár sín hjá Liverpool.

Tengdapabbi Mane er afar sáttur með sambandið. „Ég og eiginkona mín fórum og hittum fjölskyldu Mane einn daginn, þar hitti Mane hana Aisha í fyrsta sinn,“ segir Tamba.

„Hann sá eitthvað sérstsakt í henni og foreldra hans líka. Þau komu og hittu mig, við ræddum forsendur sambandsins eins og hefð er fyrir. Við komumst að samkomulagi um allt og biðum eftir þessum degi.“

„Þau voru aldrei að hittast fyrir þetta, Aisha var svo ung.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“
433Sport
Í gær

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“
433Sport
Í gær

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með