fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Tóku Úkraínumenn Rússa í bólinu með nýju vopni?

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. desember 2023 04:30

Flak SU-34 herþotu. Mynd:Tiktok/vasyaba7

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðasta vika hefur verið rússneska flughernum dýrkeypt. Úkraínumenn hafa grandað að minnsta kosti 5 SU-30 og SU-34 orustuþotum en þetta eru fullkomnustu orustuþotur Rússa. Fyrstu fregnir hermdu að þeim hefði verið grandað með Patriot-loftvarnarkerfum sem Vesturlönd hafa látið Úkraínumönnum í té. En nú hefur önnur kenning skotið upp kollinum og ef hún er rétt þá er óhætt að segja að Úkraínumenn hafi tekið Rússa í bólinu.

Þessi nýja kenning gengur út á að orustuþotunum hafi verið grandað af F-16 orustuþotum sem Úkraínumenn hafa fengið frá Vesturlöndum. Nokkur vestræn ríki hafa gefið Úkraínumönnum slíkar þotur og hafa úkraínskir flugmenn verið í þjálfun á Vesturlöndum síðustu mánuði til að læra að fljúga slíkum þotum. F-16 er mjög fullkomin orustuþota sem margir vestrænir herir ráða yfir. Fram að þessu hefur verið talið að Úkraínumenn myndu fá slíkar þotur á næsta ári en nú er sú kenning komin fram að þeir hafi nú þegar fengið nokkrar afhentar og hafi tekið þær í notkun.

Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við TV2 að ekki sé hægt að útiloka að rússnesku flugvélarnar hafi verið skotnar niður af F-16 þrátt fyrir að þær eigi opinberlega ekki að vera komnar í hendur Úkraínumanna. Hann sagði engar sannanir fyrir að F-16 vélar hafi verið notaðar til að skjóta vélarnar niður og bætti við: „En þessi mikli fjöldi rússneskra flugvéla, sem var skotinn niður, er nákvæmlega það sem Úkraínumenn vonast til að geta gert með þessum flugvélum og það er athyglisvert að þetta gerðist á mörgum stöðum við víglínuna. Nú er sá tími sem við megum eiga von á fyrstu F-16 vélunum í Úkraínu.“

En hvort sem það voru F-16 vélar eða eitthvað annað sem var notað til að granda rússnesku orustuþotunum þá munu Rússar standa frammi fyrir miklum áskorunum í lofti á næstunni sagði hann.

Hann sagði ekki útilokað að F-16 vélum hafi verið laumað til Úkraínu án þess að tilkynnt væri um komu þeirra opinberlega. Það geti þjónað hernaðarlegum hagsmunum að gera það þannig, að geta komið óvinunum á óvart með nýju vopni. Það sama hafi gerst fyrir nokkrum mánuðum þegar Úkraínumenn fengu langdræg ATACMS-flugskeyti. Ekki hafi verið tilkynnt um afhendingu þeirra og síðan hafi þær farið að hæfa skotmörk sem höfðu verið utan skotfæris Úkraínumanna fram að því.

Rússneski herbloggarinn Rybar, sem er með tæplega tvær milljónir fylgjenda á Telegram, segir að Úkraínumenn hafi nú þegar tekið 12 F-16 vélar í notkun og að þrjár til viðbótar séu notaðar til þjálfunar í Úkraínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box
Fréttir
Í gær

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi
Fréttir
Í gær

Hinn siðblindi Siggi hakkari flækist inn í stóra lekamálið og Jón Óttar viðrar samsæriskenningu um Helga Seljan og héraðssaksóknara

Hinn siðblindi Siggi hakkari flækist inn í stóra lekamálið og Jón Óttar viðrar samsæriskenningu um Helga Seljan og héraðssaksóknara
Fréttir
Í gær

Var ekki nógu þolinmóður við að bíða eftir gluggatjöldunum

Var ekki nógu þolinmóður við að bíða eftir gluggatjöldunum