fbpx
Fimmtudagur 11.september 2025
Fréttir

Lítt geðsleg plága herjar á íbúa: „Komust inn í bílskúrinn í kvöld“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. desember 2023 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miður geðsleg plága herjar nú á íbúa Tugun sem er úthverfi Gold Coast á austurströnd Ástralíu. Um er að ræða eitraða körtu sem hefur fjölgað sér hratt síðustu vikur vegna afar hagstæðra veðurskilyrða.

News.co.au greinir frá þessu og hafa myndir af plágunni meðal annars birst á vefnum Reddit.

Um er að ræða svokallaða sykurreyrskörtu (Rhinella Marina) sem getur valdið miklum skaða enda étur hún nánast allt sem að kjafti kemur.

Maður að nafni Jonathan deildi myndinni hér að ofan á Reddit og sagðist hann óttast hvað gerist þegar körturnar verða búnar að ná fullri stærð.

„Þær eru um það bil þremur vikum frá því að taka yfir bæinn. Þarna geng ég reglulega með hundinn minn, þetta er alveg við húsið mitt“ sagði hann og bætti við að jafnvel húsið hans væri ekki óhult. „Þær komust inn í bílskúrinn til mín í kvöld. Þetta er ömurlegt.“

Sykurreyrskartan var flutt til Ástralíu árið 1935 til að halda skordýrum í skefjum. Aðeins voru 102 körtur fluttar til Ástralíu en ekki leið á löngu þar til þær voru búnar að fjölga sér og koma sér vel fyrir. Talið er að stofninn telji að minnsta kosti 200 milljón dýr um þessar mundir.

Kartan á enga náttúrulega óvini og á því afar auðvelt með að fjölga sér ef skilyrði eru góð. Sú staðreynd að kartan er eitruð veldur mörgum Áströlum hugarangri en hún getur sprautað eitri frá sér ef hún telur sér ógnað.

Ef eitrið kemst inn í meltingarfæri manna eða dýra getur það valdið dauða, en í umfjöllun News.co.au kemur fram að ekkert dauðsfall hafi orðið í Ástralíu sem rekja má til körtunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Faðir Oscars ákærður

Nýlegt

Arftaki Mourinho klár
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum
Faðir Oscars ákærður
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Allt á suðupunkti eftir atburði næturinnar: „Staðan er alvarleg“

Allt á suðupunkti eftir atburði næturinnar: „Staðan er alvarleg“
Fréttir
Í gær

Ung Akureyrarmær í vanda – Ferðin til Alicante endaði hörmulega

Ung Akureyrarmær í vanda – Ferðin til Alicante endaði hörmulega
Fréttir
Í gær

Réðst á dyravörð á Akureyri

Réðst á dyravörð á Akureyri
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi: „Ekki svo að útlendingar fremji hlutfallslega fleiri alvarleg brot“

Guðmundur Ingi: „Ekki svo að útlendingar fremji hlutfallslega fleiri alvarleg brot“
Fréttir
Í gær

Hótelverðið fjórfaldaðist á fjórum árum – „Þetta svakalega verðlag er erfitt fyrir Íslendinga líka“

Hótelverðið fjórfaldaðist á fjórum árum – „Þetta svakalega verðlag er erfitt fyrir Íslendinga líka“
Fréttir
Í gær

Ríkissaksóknari ógildir ákvörðun lögreglunnar – Bjó við stanslausar hótanir og varð fyrir árás grímuklædds manns

Ríkissaksóknari ógildir ákvörðun lögreglunnar – Bjó við stanslausar hótanir og varð fyrir árás grímuklædds manns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Magga Frikka fær að leggja fram bréf um meint framhjáhald Barböru

Magga Frikka fær að leggja fram bréf um meint framhjáhald Barböru
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Braut rúðu í lögreglubíl með því að skalla hana

Braut rúðu í lögreglubíl með því að skalla hana