fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Óska eftir svörum frá Stefáni vegna „sögufölsunar“ í heimildaþætti RÚV

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. desember 2023 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þá sögufölsun verður að leiðrétta með afgerandi hætti, hvort sem hún var vísvitandi gerð eða ekki. — Við væntum skjótra svara.“

Þetta segir í opnu bréfi frá fulltrúum Stjórnarskrárfélagsins til Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra sem birtist á vef Vísis í morgun.

Í bréfinu segir meðal annars:

„Ágæti útvarpsstjóri, Stefán Eiríksson.

Alvarlega og grófa staðreyndavillu um sögu Íslands er að finna í síðari hluta heimildaþáttar sem framleiddur var fyrir Ríkisútvarpið í tilefni 100 ára fullveldis landsins og sendur út 3. desember síðastliðinn. Hér með er óskað eftir svörum við því hvernig Ríkisútvarpið ætlar að bregðast við og leiðrétta villuna gagnvart almenningi.“

Röng fullyrðing um stórviðburð

Í bréfinu kemur fram að í þættinum sem um ræðir, Fullveldi 1918, sé ranglega staðhæft að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur að nýrri stjórnarskrá sem urðu til eftir hrunið 2008 hafi aldrei farið fram.

„Nánar tiltekið, með þessum orðum: „Þjóðaratkvæðagreiðslan sem átti að halda var aldrei haldin.““

Í hinu opna bréfi, sem sjö fulltrúar félagsins leggja nafn sitt við, kemur fram að ekki sé hægt að láta þessa röngu fullyrðingu um grundvallaratriði og stórviðburð í sögu landsins standa óhreyfða í heimildarþætti sem almannaútvarpið sendir út og ber ábyrgð á.

„Stjórnarskrárfélagið óskar eftir að útvarpsstjóri svari því opinberlega hvernig þetta verði leiðrétt og hinu rétta í málinu komið á framfæri.“

Sögufölsun sem verði að leiðrétta

Bent er á að Alþingi hafi boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur að nýrri stjórnarskrá sem var haldin 20. október 2012.

„Tillögurnar voru niðurstaða lýðræðislegs ferlis sem vakti heimsathygli, „eitt víðtækasta og lýðræðislegasta stjórnarskrárferli sem vitað er um“, svo notuð séu orð Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Í Þjóðaratkvæðagreiðslunni samþykktu yfir 2/3 hlutar kjósenda (66,9%) að tillögurnar sem fyrir þá voru lagðar skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands.“

Í bréfinu segir að í lýðræðisríkjum séu úrslit kosninga virt, ávallt og afdráttarlaust.

„Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa þó ekki enn verið virt og framganga margra í málinu og vanvirðing gagnvart lýðræðislegum grundvallargildum lofar ekki góðu. Við lifum viðsjárverða tíma falsfrétta og þöggunar og það er ótækt að því sé haldið fram í Ríkisútvarpinu að þjóðaratkvæðagreiðslan 2012 um nýja stjórnarskrá hafi aldrei verið haldin. Þá sögufölsun verður að leiðrétta með afgerandi hætti, hvort sem hún var vísvitandi gerð eða ekki. — Við væntum skjótra svara.“

Undir bréfið skrifa fulltrúar Stjórnarskrárfélagsins, þau Jóna Benediktsdóttir, formaður, Hjörtur Hjartarson, Katrín Oddsdóttir, Kjartan Jónsson, Kristín Erna Arnardóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Þórir Baldursson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast