fbpx
Fimmtudagur 17.júlí 2025
Fókus

Karen Ósk mætt til Ítalíu til að keppa fyrir hönd Íslands – „Þetta er stór áskorun og alveg út fyrir þægindarammann“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 2. nóvember 2023 20:29

Karen Ósk Kjartansdóttir. Aðsendar myndir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karen Ósk Kjartansdóttir, 19 ára, er stödd á Ítalíu til að keppa fyrir hönd Íslands í fegurðarsamkeppninni Miss Europe Continental.

Við heyrðum í Karen Ósk í gær en þá var hún einmitt á leið frá Íslandi til Napólí, þar sem keppnin verður haldin.

Karen Ósk keppir fyrir hönd Íslands í Miss Europe Continental. Mynd/Arnór Trausti

Topp tíu í Ungfrú Ísland

Karen Ósk er alin upp á Álftanesi og mun útskrifast síðar í mánuðinum sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Meðfram skóla hefur hún unnið í verslun Ormsson að selja raftæki og innréttingar. Hún hefur gaman af því að fara á tennisæfingar, skíða með fjölskyldunni og fjallahjólreiðum.

Karen Ósk tók þátt í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland – sem þá hét Miss Universe Iceland – árið 2022 og lenti í topp tíu.

Aðsend mynd.

Nú liggur leið hennar utan landsteina í Miss Europe Continental.

„Ástæðan fyrir þátttöku minni er fyrst og fremst til þess að styrkja sjálfa mig en aldrei hefði mér dottið það í hug að ég myndi fara að keppa í fleiri keppnum, hvað þá fyrir Ísland í Evrópu,“ segir hún.

„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér tækifærin sem mér hafa boðist eftir þátttöku mína í keppninni heima á Íslandi og mér finnst ég hafa vaxið sem einstaklingur.“

Mynd/Arnór Trausti

Ekki bara fegurðarsamkeppni

Karen Ósk er spennt fyrir næstu dögum.

„Ég finn fyrir miklum spenningi að hitta allar stelpurnar sem verða með mér í þessu ferli en ég er líka svolítið stressuð. Undirbúningurinn fyrir svona verkefni tekur langan tíma. Ég veit að vikan fram undan mun taka verulega á, þetta er stór áskorun og alveg út fyrir þægindarammann stundum. Ég veit hins vegar að ég mun verða mjög glöð með sjálfa mig að keppni lokinni, alveg sama hver úrslitin verða,“ segir hún.

„Fyrir mér er þetta ekki bara fegurðarsamkeppni heldur horfi ég frekar a þetta sem sjálfsstyrkingarnámskeið. Og tækifæri til þess að stækka tengslanetið mitt.“

Fylgstu með Karen Ósk á Instagram.

Hægt verður að horfa á keppnina í beinni á Amazon Prime.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Jessica náði sér í Marvel-stjörnu sem er 11 árum yngri

Jessica náði sér í Marvel-stjörnu sem er 11 árum yngri
Fókus
Fyrir 2 dögum

Steikti egg á húddinu í ótrúlegum hita á Suðurlandi – „Bragðaðist svona líka dásamlega hérna í blíðunni í Hveragerði“

Steikti egg á húddinu í ótrúlegum hita á Suðurlandi – „Bragðaðist svona líka dásamlega hérna í blíðunni í Hveragerði“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Gott að vera tengdur innra barninu í sér“

Vikan á Instagram – „Gott að vera tengdur innra barninu í sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Minnist vináttunnar á árs dánarafmæli Doherty

Minnist vináttunnar á árs dánarafmæli Doherty
Fókus
Fyrir 5 dögum

Grill- og tónlistarhátíðin Kótelettan nær hámarki í dag – myndasyrpa frá föstudagskvöldinu

Grill- og tónlistarhátíðin Kótelettan nær hámarki í dag – myndasyrpa frá föstudagskvöldinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta eru tíu óhollustu skyndibitakeðjur Bandaríkjanna – Máltíðin stundum yfir 2.000 kaloríur

Þetta eru tíu óhollustu skyndibitakeðjur Bandaríkjanna – Máltíðin stundum yfir 2.000 kaloríur