fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fréttir

Brúðardansinn með Pútín markaði upphaf mikillar niðursveiflu – Nú tekur ráðherrann fyrrverandi síðasta skrefið

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. október 2023 07:00

Kneissl og Pútín í brúðkaupinu. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðla sumars 2018 tók Karin Kneissl risastórt skref inn á pólitíska sviðið þegar upptaka frá brúðkaupi hennar birtist. Hún var þá utanríkisráðherra Rússlands. Á upptökunni líktist Kneissl draumi í dirndl, sem er austurrískur þjóðbúningur,  að sögn New York Times sem sagði að samt sem áður hafi það verið Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, sem stal senunni.

Hann stal ekki senunni vegna kósakkakórsins sem hann tók með eða vegna safíreyrnalokkanna sem hann gaf Kneissl eða vegna allra öryggisvarðanna og öryggisráðstafananna sem fylgdu komu hans. Hann stal senunni með því að bjóða Kneissl upp í dans.

Myndir af austurrískum ráðherra, í faðmi Pútíns á dansgólfinu og að hneigja sig fyrir honum að dansinum loknum, fóru eins og eldur í sinu um heiminn.

Upptakan af Kneissl þótti táknræn fyrir ráðherrann og þjóð sem falbauð sig Rússlandi Pútíns og það á tíma þar sem Vesturlönd reyndu að draga úr samskiptunum við Rússland.

Nú hefur Kneissl aftur komist í fréttirnar fyrir samskipti sín við Pútín og Rússland. Að þessu sinn vegna þess að hún er flutt til Rússlands. Hún flutti fyrst í bæ sem er í um 5 klukkustunda akstursfjarlægð frá Moskvu en síðan flutti hún til St Pétursborgar þar sem hún býr nú.

Karin Kneissl. Mynd:Wikimedia Commons/Bundesministerium für Europa, Integration und Äußeres

 

 

 

 

 

 

 

Hún segir sjálf að hún hafi verið „ofsótt“ í Evrópu. Hún hefur reglulega komið fram í rússneska áróðursmiðlinum RT, sem er rekinn af rússneskum yfirvöldum, hún tekur þátt í rússneskum kaupsýsluviðburðum og ráðstefnum og athygli hefur vakið að hún ver innrás Rússa í Úkraínu og útskýrir ástæður hennar.

Kneissl er ekki ein í sjálfskipaðri útlegð sinni frá lýðræðinu í Evrópu. Á Telegram sagði hún að hestarnir hennar tveir hafi verið fluttir til Rússlands með flugvél frá rússneska flughernum. Kötturinn hennar fékk einnig far til Rússlands.

Mál Kneissl hefur enn einu sinni vakið athygli umheimsins á tvískinnungi í samskiptum Austurríkis við Rússland.

Kneissl, sem stendur utan stjórnmálaflokka, var fengin til að gegna embætti utanríkisráðherra af Frelsisflokknum FPÖ sem er hægrisinnaður þjóðernisflokkur.

Almennt séð þá hafa austurrískir stjórnmálamenn og elíta landsins ekki verið feimin við að bjóða rússneskum ráðamönnum upp í dans. Fyrr á árinu skýrði Der Spiegel frá því að austurríski kaupsýslumaðurinn Siegfried Wolf hefði sent bréf til Pútíns þar sem hann bauðst til að endurreisa lamaðan rússneskan bílaiðnaðinn gegn því að fá milljarða að láni frá Kreml.

Austurríski Raiffeisen Bank International sér í dag um 40% af öllum greiðslum Rússa til útlanda. Rúmlega helmingur tekna bankans kemur frá viðskiptum tengdum Rússlandi. Á síðasta ári hagnaðist bankinn um sem nemur 560 milljörðum íslenskra króna á þessum viðskiptum og hann hefur ekki í hyggju að hætta þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fimm ára drengur nærri drukknaður á Tenerife

Fimm ára drengur nærri drukknaður á Tenerife
Fréttir
Í gær

Segir Landsvirkjun ásælast Þjórsárver eins og Rússar Úkraínu

Segir Landsvirkjun ásælast Þjórsárver eins og Rússar Úkraínu
Fréttir
Í gær

Þetta eru tíu tekjuhæstu Íslendingarnir á síðasta ári – Fengu samtals um 30 milljarða

Þetta eru tíu tekjuhæstu Íslendingarnir á síðasta ári – Fengu samtals um 30 milljarða
Fréttir
Í gær

Þórdís Kolbrún sár út í Ragnar: „Ákaflega ógagnlegt og ámælisvert”

Þórdís Kolbrún sár út í Ragnar: „Ákaflega ógagnlegt og ámælisvert”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bendir á þessa hvimleiðu hegðun ökumanna sem hefur gormaáhrif á háannatíma

Bendir á þessa hvimleiðu hegðun ökumanna sem hefur gormaáhrif á háannatíma
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tvær mjög ungar konur ákærðar fyrir stórfellt fíkniefnabrot

Tvær mjög ungar konur ákærðar fyrir stórfellt fíkniefnabrot