fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Rússar sleikja norðurkóreska einræðisherrann upp – Íhugar að senda „sjálfboðaliða“ til Úkraínu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 1. ágúst 2023 04:05

Kim Jong-un einræðisherra í Norður-Kóreu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússar leggja mikið á sig þessa dagana til að sleikja Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, upp. Ástæðan er auðvitað að þeir, eins og Norður-Kóreumenn, eru vinafáir á alþjóðavettvangi og hvað er þá betra en að halla sér að ríki sem er einnig útskúfað af stærstum hluta alþjóðasamfélagsins.

Í síðustu viku fór Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, í opinbera heimsókn til Norður-Kóreu og var honum vel tekið enda ekki oft sem erlendir ráðamenn heimsækja einræðisstjórnina.

Shoigu ræddi auðvitað við Kim Jong-un og hann var einnig viðstaddur stóra hersýningu þar sem Norður-Kóreumenn sýndu honum meðal annars langdrægar flaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Þessar flaugar geta náð alla leið til Bandaríkjanna að sögn Norður-Kóreumanna.

Ástæðan fyrir heimsókninni var að nú eru 70 ár liðin síðan samið var um vopnahlé í stríði Kóreuríkjanna. Shoigu hafði meðferðis myndbandsupptöku með ávarpi frá Vladímír Pútín. Í því þakkaði hann Norður-Kóreu fyrir stuðninginn við innrás Rússa í Úkraínu og lofsamaði sterk tengsl ríkjanna tveggja.

Hann fór ekki út í smáatriðum hvaða stuðning Norður-Kóreu hefur veitt Rússlandi en Bandaríkin hafa sakað Norður-Kóreu um að senda Rússum fallbyssuskot og flugskeyti í staðinn fyrir olíu og matvæli. Rússar hafa vísað þessu á bug.

Shoigu skoðaði flugskeytaskotpalla og vopnaverksmiðjur og sýndu Norður-Kóreumenn honum fullkomnustu vopn sín.

Igor Korotjenko, sem gefur út rússneskt hernaðarrit, sagði að í augum Kremlverja sé Norður-Kórea eðlilegt bandalagsríki í dag. Heimsókn Shoigu sé til vitnis um að hernaðarsamvinna ríkjanna hafi náð nýjum hæðum.

Aleksei Chepa, sem er þekktur rússneskur stjórnmálamaður, sagði að Shoigu hafi í heimsókninni rætt möguleikann á að Norður-Kórea sendi her „sjálfboðaliða“ til Úkraínu til að berjast með Rússum. Chepa er varaformaður utanríkismálanefndar rússneska þingsins.

The Times segir að samkvæmt því sem rússneskur hernaðarsérfræðingur segi þá sé raunhæft að Norður-Kórea geti sent 100.000 hermenn til Úkraínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár
Fréttir
Í gær

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands
Fréttir
Í gær

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“
Fréttir
Í gær

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta
Fréttir
Í gær

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“