fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar leikur lykilhlutverk á bak við tjöldin

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 27. júlí 2023 04:05

Kyrylo Budanov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar. Mynd:Úkraínska varnarmálaráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kyrylo Budanov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, hefur mörg járn í eldinum. Þar má nefna skemmdarverk í Rússlandi, fangaskipti við Rússa og njósnir um hvað Rússar hafa í hyggju og hver staðan er í Kreml.

Sprenging, sem átti sér stað laugardagsmorgun einn í október, breytti gangi stríðsins í Úkraínu. Á örskotsstund skemmdust lestarteinar og akbrautin á Krímbrúnni, sem er táknmynd fyrir innlimun Krímskaga í Rússland, mikið í sprengingu.

Þetta var þungt högg fyrir stolt Pútíns og um leið kom árásin í veg fyrir það mánuðum saman að Rússar gætu flutt hersveitir og búnað til Krím beint frá meginlandi Rússlands.

Í fyrstu neituðu Úkraínumenn að hafa haft nokkuð með sprenginguna að gera en fljótlega var ljóst að umfang hennar og nákvæmni árásarinnar var þannig að ekki gat verið um tilviljun að ræða.

Ein fyrsta vísbendingin um hverjir gætu hafa staðið á bak við árásina kom í lok október þegar Budanov skýrði frá skoðun sinni á framtíð brúarinnar. „Krímbrúin er tákn sem verður eyðilagt. Þegar við endurheimtum Krím mun brúin heyra sögunni til,“ sagði hann í samtali við Ukrainska Pravda.

Árásir að baki víglínunni eru nokkurskonar einkennismerki Budanov. Í kjölfar árásar Rússa á Úkraínu vorið 2014 lék hann lykilhlutverk í að skipuleggja andspyrnuna gegn hernámsliðinu.

Samkvæmt því sem úkraínskir fjölmiðlar segja þá tók Budanov beinan þátt í ýmsum leynilegum aðgerðum frá 2018 til 2020. Í ágúst 2020 var hann gerður að yfirmanni leyniþjónustu hersins.

Jótlandspósturinn segir að Rússar hafi fljótlega áttað sig á að þeir stóðu gegnt alvöru andstæðingi. Að minnsta kosti var bíll Budanov sprengdur í loft upp 2019. Talið er að Rússar hafi verið að verki. Eftir þetta hafa Rússar reynt að ráða hann af dögum um 10 sinnum að sögn Novaja Vremja.

Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu á síðasta ári hefur afrekaskrá Budanov lengst mikið.

Leyniþjónustan vinnur á mörgum sviðum, allt frá upplýsingaöflun til drápa á hermönnum á herteknu svæðunum.

Úkraínumenn nota mikið sömu aðferð og Rússar hafa notað í aðgerðum sínum og áreitni gagnvart nágrannaríkjunum og Vesturlöndum: Að gera lítið úr og neita aðild að árásum og aðgerðum og skiptir þá engu að böndin beinist að þeim. Þetta er ein af ástæðunum að erfitt er að segja til með fullri vissu hvort Bodanov hafi komið að ákveðnum aðgerðum í stríðinu.

Það er erfitt að ímynda sér að þær árásir sem rússneskir hópar, sem styðja Úkraínumenn, hafa gert í rússneskum héruðum hafi átt sér stað án þess að Bodanov og leyniþjónustan hafi samþykkt þær eða að minnsta kosti látið þær óátaldar.

Leyniþjónustan hefur einnig verið orðuð við launmorð í Rússlandi. Margir þekktir talsmenn stríðsreksturs Rússa hafa verið ráðnir af dögum og nýlega var fyrrum kafbátsforingi skotinn til bana í Rússlandi þegar hann var úti að hlaupa.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“
Fréttir
Í gær

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár
Fréttir
Í gær

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands

Alexios og Rafail fengu þunga dóma fyrir kókaíninnflutning til Íslands
Fréttir
Í gær

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“

Afhjúpa áróður á TikTok – „Svo aumt af SFS að geta ekki komið fram undir eigin nafni“
Fréttir
Í gær

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta
Fréttir
Í gær

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum

Gaseldavélar geti aukið hættu á krabbameini tvöfalt meira hjá börnum en fullorðnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“