Það var Margarita Simonyan, aðalritstjóri ríkisfjölmiðilsins Russia Today, sem sagði þetta og hafa ummælin vakið mikla athygli. Allt frá upphafi stríðsins hefur Simonyan lofsungið rússneska herinn og hótað NATO báli og brand ef bandalagið blandar sér í stríðið.
En nú er komið annað hljóð í strokkinn. Úkraínumenn styrkjast með hverri vopnasendingunni á fætur annarri frá Vesturlöndum og Simonyan sagði það aðeins tímaspursmál hvenær Úkraínumenn geta gert harðar árásir á Rússland.
„Þeir munu ráðast á rússneskt landsvæði. Belgorod-héraðið og Voronezh-héraðið og, guð hjálpi mér, Rostov, Kasnodar og Krím,“ sagði hún í rússnesku sjónvarpi í síðustu viku og bætti við að af þessum sökum sé kominn tími til að stöðva bardagana og finna friðsamlega lausn á deilunni.
„Ég hef allt árið talað um hversu yndislegt það væri að stöðva blóðsúthellingarnar. Allir stoppa þar sem þeir eru og síðan höldum við áfram með atkvæðagreiðslur (á hernumdu svæðunum, innsk. blaðamanns),“ sagði hún.
Fyrir sex mánuðum sagði hún að henni væri „skítsama um hvað Vesturlönd hugsa“ og að hún vildi enn fleiri flugskeytaárásir á Úkraínu. Í mars sagði hún að Rússland myndi sigra allan hinn vestræna heim.
Fyrir þremur vikum lagði hún til að allir Rússar skyldu vinna í tvær klukkustundir á dag í vopnaverksmiðjum til að framleiða skotfæri fyrir rússneska herinn. Þetta átti fólk að gera að loknum venjulegum vinnudegi.
Meduza segir að ummælin hafi farið illa í rússneska herbloggara og aðra stríðshauka og að gagnrýni hafi rignt yfir hana. Hún hefur verið sökuð um að setja fram „ósigursáróður“ og „nota orð sem lykta af föðurlandssvikum“.
En sumir herbloggarar telja ummæli hennar undanfara breytinga á stríðstaktík Kremlverja. Simonyan er venjulega á sömu línu og Pútín en nú hefur hún sagt að Rússar eigi ekki að halda svæðum sem vilja ekki vera rússnesk. „Höfum við þörf fyrir svæði sem vilja ekki vera hjá okkur? Ég er ekki viss. Og eitthvað segir mér að forsetinn hafi heldur ekki þörf fyrir þessi svæði,“ sagði hún.