fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Fyrrum framkvæmdastjóri NATO útilokar ekki að einstök NATO-ríki sendi herlið inn í Úkraínu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 13. júní 2023 04:01

Úkraínskir hermenn á vígvellinum. Mynd:Úkraínska varnarmálaráðuneytið/Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að Anders Fogh Rasmussen, fyrrum forsætisráðherra Danmerkur og fyrrum framkvæmdastjóri NATO, hafi látið athyglisverð ummæli falla nýlega um stríðið í Úkraínu. Hann sagði ekki útilokað að einstök NATO-ríki muni missa þolinmæðina og senda herlið inn í Úkraínu.

Samkvæmt frétt The Guardian þá sagði Rasmussen að Pólland og önnur ríki séu í fullum rétti til að senda herlið til Úkraínu og ef aðildarríki NATO nái ekki samstöðu um öryggistryggingu fyrir Úkraínu sé ekki útilokað að sum ríki muni missa þolinmæðina og grípa sjálf til aðgerða.

Rasmussen á sæti í sérfræðingahópi sem veitir Volodymyr Zelenskyy, forseta Úkraínu, ráðgjöf um öryggismál.

Telur Rasmussen að sérstaklega Pólland, sem á landamæri að Úkraínu, hafi þörf fyrir að taka á sig enn meiri ábyrgð vegna stöðunnar í Úkraínu. „Við vitum að Pólland er mjög staðfast í að aðstoða Úkraínu. Ég vil ekki útiloka möguleikann á að Pólland muni blanda sér enn frekar í málin og að Eystrasaltsríkin muni fylgja í kjölfarið. Hugsanlega með að senda hermenn til Úkraínu,“ sagði Rasmussen.

Aðildarríki NATO funda um miðjan júlí í Vilnius í Litáen og meðal umræðuefna verður enn frekari hernaðarstuðningur við Úkraínu og einnig verður nýr framkvæmdastjóri NATO valinn.

Rasmussen sagði að á þessum fundi vænti ríkin á austurvæng bandalagsins þess að komist verði að niðurstöðu um eitthvert form öryggistryggingar til handa Úkraínu.

Hann sagði að eftir innrás Rússa í Úkraínu hafi miklar tilfinningar byggst upp hjá pólsku þjóðinni: „Við skulum ekki vanmeta tilfinningar pólsku þjóðarinnar. Pólverjum finnst að Vestur-Evrópa hafi allt of lengi komið sér hjá því að hlusta á viðvaranir þeirra um hið raunverulega rússneska hugarfar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin