Það er óvíst hvað framtíð Harry Maguire ber í skauti sér. Ný færsla Manchester United gæti hins vegar þýtt að hann verði áfram.
Maguire gekk í raðir United frá Leicester árið 2019 fyrir 80 milljónir punda.
Kappinn hefur ekki alltaf staðið undir væntingum og verið í algjöru aukahlutverki á þessari leiktíð.
Maguire hefur því verið orðaður burt.
Það vakti hins vegar athygli marga að miðvörðurinn kemur fyrir í nýrri færslu United til að auglýsa æfingatreyju næsta tímabils.
Enskir miðlar velta því upp hvort það merki að Maguire verði áfram.
Sitt sýnist hverjum.
New training kit for the 23/24 season. #mufc pic.twitter.com/Of5iwq8E4m
— UtdXclusive (@UtdXclusive) May 23, 2023