fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Tottenham að klára fyrstu kaup sumarsins

Victor Pálsson
Laugardaginn 13. maí 2023 20:38

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dejan Kulusevski, leikmaður Tottenham, mun endanlega ganga í raðir félagsins í sumarglugganum.

Þetta fullyrða enskir miðlar en Kulusevski hefur verið í láni hjá Tottenham frá ítalska stórliðinu Juventus.

Kulusevski skrifaði undir 18 mánaða lánssamning við Tottenham en hann rennur út í sumar.

Um tíma var rætt um að Kulusevski myndi snúa aftur til Ítalíu í sumar en það er ekki rétt og ætlar Tottenham að tryggja sér hann endanlega.

Enska félagið þarf að borga 30 milljónir punda fyrir Kulusevski og er það skylda ef félagið kemst í Meistaradeildina.

Meiðsli hafa sett strik í reikning leikmannsins á þessu tímabili en Tottenham hefur þó mikinn áhuga á að semja við hann endanlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur