Arsenal er opið fyrir því að selja Folarin Balogun í sumar en aðeins fyrir rétt verð. Sky Sports í Þýskalandi segir frá.
Balogun hefur komið mörgum á óvart á leiktíðinni og raðað inn mörkum fyrir Reims í Frakklandi. Englendingurinn ungi er þar á láni frá Arsenal.
Hinn 21 árs gamli Balogun kom upp í gegnum unglingastarf Arsenal og er samningsbundinn félaginu til 2025.
Hann fór hins vegar til Reims á láni fyrir þessa leiktíð í leit að meiri spiltíma. Það fékk hann heldur betur og hefur þakkað traustið. Balogun hefur skorað 19 mörk á leiktíðinni.
Balogun vill verða fastamaður hjá Arsenal en alls ekki er víst að það sé raunhæft. Hann gæti því horft í kringum sig í sumar.
Arsenal er til í að selja hann en aðeins ef tilboð berst upp á 35 milljónir punda eða meira.
AC Milan, Inter, Marseille, Leipzig og Monaco gætu öll barist um leikmanninn.
Balogun hefur spilað fyrir yngri landslið Englands en er fæddur í Bandaríkjunum. Hann getur valið á milli þegar kemur að A-landsliði.