Friðrik Agni Árnason er einstaklega fallegur maður, dansari, með góða nærveru og bjart bros. Hann er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.
Friðrik Agni er opinn á samfélagsmiðlum þar sem hann er opinn með sína sjálfsvinnu og hefur opnað sig með ýmis áföll og átröskun.
Var misnotaður tólf ára gamalla
Hann er sonur íslensk manns og indverskrar konu sem ættleidd var þaðan af þýskri konu.
Frá unga aldri var augljóst að Friðrik væri skapandi, góður dansari og æfði mikið.
„Ég var alltaf í toppbaráttu í keppnum frá byrjum en í dag fylgir dansinn mér en í öðru formi, frekar social dans og með hópefli.“
Aðeins 12 ára gamall var Friðrik misnotaður kynferðislega og hélt því leyndu og geymdi skömmina einn með sjálfum sér í mörg ár.
„Mér fannst ég ekki hafa stjórn á neinu í mínu lífi eftir þessa misnotkun þannig að ég fór að taka stjórn á matnum og hafa stjórn á því sem ég setti ofan í mig“.
Friðrik mætti í skólann, fór beint á æfingu og var fram á kvöld.
„Ég stóð mig vel en fann líka ákveðna pressu vegna þess að foreldrar mínir sögðu mér að þeir væru stoltir af mér og þá vildi ég ekki valda vonbrigðum“.
Angi af stóru máli
Nokkrum árum seinna, aðeins 16 ára, lenti Friðrik í öðru kynferðisofbeldi máli sem komst upp þegar lögreglan hringdi því hann var einn anginn af stóru máli. „Ég sagði frá með mömmu og pabba hjá lögreglunni og segi þá frá fyrra tilfellinu líka sem var áfall fyrir foreldra mína“.
Djammið tók við þegar að Friðrik var átján ára og reyna að finna sig. Hann hætti í skóla, fékk boð um að fara til Ástralíu að kenna dans og fór.
„Ég fékk rosalega heimþrá, var búin að kynnast strák heima áður en ég fór og kynntist dökkum hliðum dansheimsins þarna. Ég tók ákvörðun um að fljúga heim til að athuga með strákinn heima á Íslandi og hann er maðurinn minn í dag“.
Sjálfsvinna skilar miklu
Í dag hefur Friðrik tekið áfengi út úr sínu lífi og hefur áður tekið það út í eitt ár því hann hefur stundum átt kvöld sem áfengið tekur völdin.
Friðrik Agni talar um að sjálfsvinnan hafi fært honum margt: „Það að vinna þessa vinnu gerir það að verkum að ég þekki mína kosti og líka mína bresti. Ég get tekið utan um litla Frikka sem lenti í öllum þessum áföllum því það er auðvitað scary að horfast í augu við sjálfan sig, segir Friðrik Agni.
Það má hlusta á viðtalið við Friðrik Agna í heild sinni í hlaðvarpinu Sterk saman.