fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
433Sport

,,Jafnvel ef þeir hefðu hótað mér með byssum þá hefði ég aldrei gefist upp“

433
Sunnudaginn 1. júní 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dusan Tadic, fyrrum leikmaður Southampton, hefur tjáð sig um óhugnanlegt atvik sem átti sér stað á sínum tíma er hann lék með Ajax í Hollandi.

Þrír menn réðust þá að Tadic við heimili hans en slagsmál brutust út í kjölfarið þar sem Serbinn neitaði að gefa eftir.

Tadic stóð svo sannarlega fyrir sínu í þessum slagsmálum en hann var einn gegn þremur mönnum og slapp nokkuð ómeiddur.

Plan árásarmannana var að ræna heimili Tadic sem er frægur knattspyrnumaður sem spilar í dag með Fenerhahce í Tyrklandi.

,,Ég var úti að borða með vini mínum. Þeir höfðu merkt bílinn minn svo þeir gátu fylgst með því hvert ég væri að keyra,“ sagði Tadic.

,,Þegar ég kom heim þá reyndu tveir menn að ráðast á mig og ég náði að hlaupa burt í um 400 metra. Ég var klæddur í jakkaföt en ég var samt fljótari en þeir.“

,,Þeir settust á vespurnar sínar og náðu mér að lokum og þá hófust slagsmálin. Ég náði að landa nokkrum höggum.“

,,Einn af þeim náði að grípa um hálsinn á mér en ég svaraði með olnbogaskoti. Eftir það þá náði ég að spretta burt og þeir fundu mig ekki aftur.“

,,Eftir á þá áttarðu þig á því að hlutirnir hefðu getað endað öðruvísi. Þú ert fullur af adrenalíni og byrjar bara að slást.“

,,Jafnvel ef þeir hefðu hótað mér með byssum þá hefði ég aldrei gefist upp. Ég er fæddur í Serbíu og sem krakki lenti ég í mörgum slagsmálum. Mér leið vel.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sean Dyche brjálaður – Skoraði United ólöglegt mark í gær?

Sean Dyche brjálaður – Skoraði United ólöglegt mark í gær?
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Vandræði Xavi Simons halda áfram – Niðurlægður í gær

Vandræði Xavi Simons halda áfram – Niðurlægður í gær
433Sport
Í gær

„Það léttir á öllu, það er bara svart og hvítt“

„Það léttir á öllu, það er bara svart og hvítt“
433Sport
Í gær

Stórstjarna riftir samningi eftir skamma dvöl í sjöundu efstu deild

Stórstjarna riftir samningi eftir skamma dvöl í sjöundu efstu deild
433Sport
Fyrir 2 dögum

Eiður Ben frá Breiðablik til Þórs – Á að aðstoða Sigga Höskulds

Eiður Ben frá Breiðablik til Þórs – Á að aðstoða Sigga Höskulds
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rúnar sendir pillu niður í Laugardal – „Það er það sem mér finnst alltaf svo skrýtið með KSÍ“

Rúnar sendir pillu niður í Laugardal – „Það er það sem mér finnst alltaf svo skrýtið með KSÍ“