„Það er þversagnarkennt að bæði ríkin þéni á gasinu á meðan þau berjast gegn hvort öðru á vígvellinum,“ hefur TV2 eftir Anders Christian Overvad sérfræðingi hjá hugveitunni Tænketanken Europa.
2019 samdi rússneska ríkisgasfyrritækið Gazprom til fimm ára við Úkraínumenn. Gazprom skuldbatt sig til að greiða Úkraínu átta milljarða dollara fyrir að leyfa gasi að renna í gegnum leiðslur til vestanverðrar Evrópu. Þessi samningur er enn í gildi.
Rússar hafa auðvitað mikið upp úr gassölunni en samkvæmt því sem hugveitan Center for Strategic and International Studies segir þá fer um 70% af rússnesku gasi til Evrópu. 66% af þessu gasi streymir í gegnum Úkraínu.
Stærstu kaupendurnir eru Þýskaland sem kaupir 36%, Ítalía sem kaupir 27% og Frakkland sem kaupir 23%.
Ekki er vitað hvað Rússar þéna á gassölunni en það er mun meira en Úkraínumenn fá fyrir að leyfa gasinu að streyma í gegnum land sitt. Nýlega sagði Anton Siluanov, fjármálaráðherra, að reikna megi með að tekjurnar af olíu- og gassölu verði mun hærri á árinu en reiknað var með eða sem nemur allt að 2.000 milljörðum íslenskra króna.
Margir Úkraínubúar og aðrir eiga erfitt með að skilja af hverju úkraínsk stjórnvöld leyfa rússnesku gasi að streyma í gegnum landið á sama tíma og þau hvetja Evrópuríki til að hætta að kaupa gas af Rússum. En úkraínsk stjórnvöld eru í ákveðinni klemmu hvað þetta varðar. Ef þau loka fyrir gasið þá verða þau af miklum tekjum og það gæti valdið efnahagskreppu í ESB.