fbpx
Miðvikudagur 31.desember 2025
Fréttir

Rannsaka meint morð í Barðavogi – Tengsl milli grunaðs morðingja og þess látna

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 5. júní 2022 12:12

Húsið í Barðavogi þar sem talið er að morð hafi verið framið í gærkvöldi Mynd/Google maps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn í Barðavogi í Reykjavík í gærkvöldi og er karlmaður á þrítugsaldri í haldi grunaður um verknaðinn, en talið er að andlátið hafi borðið að með saknæmum hætti. Lögregla segir að tengsl séu milli mannanna tveggja. Þetta kemur fram í frétt Vísis.

Mikill viðbúnaður lögreglu á vettvangi í gær og hafði lögreglan girt af götuna veggja vegna hússins í Barðavogi þar sem talið er að meint morð hafi verið framið. RÚV greindu frá því í morgun að talið sé að manninum hafi verið ráður baninn með barsmíðum og við það hafi barefli verið beitt.

Vísir ræddi við Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjón hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu og sagði hann einhver tengsl vera milli mannana tveggja. Lögregla vinnu nú að því að ræða við möguleg vitni í málinu, bæði fólk sem var á staðnum og eins aðila sem gætu haft upplýsingar um mögulegan aðdraganda.

Búist er við að lögregla fari fram á gæsluvarðhaldi yfir hinum handtekna í dag, en hann er grunaður um að hafa einn staðið að verki.

Uppfært: 12:34 

Í nýrri frétt RÚV segist fréttastofa hafa heimildir fyrir að mennirnir tveir hafi verið nágrannar en ekki tengst að öðru leyti. Fréttastofa hafi jafnframt heimildir fyrir því að hinn látni sé fæddur árið 1975 og meintur gerandi 2001 og þeir hafi verið nágrannar í Barðavogi. Ekki sé talið að mennirnir tengist glæpastarfsemi. Talið sé að meintur gerandi hafi barið hinn látna til bana og er til rannsóknar hvort að vopn hafi komið við sögu.

Fréttablaðið greinir frá því með vísan til heimilda að lögregla hafi minnst tvívegis verið kölluð út að Barðavogi síðasta sólarhringinn áður en maðurinn fannst þar látinn og að atburðir gærdagsins hafi haft nokkurn aðdraganda.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

„Við erum vongóð en maður er líka bara raunsær“

„Við erum vongóð en maður er líka bara raunsær“
Fréttir
Í gær

Múmínlundurinn olli uppnámi: Rétthafar Múmínálfanna sökuðu Skógræktarfélag Eyjafjarðar um höfundarréttarbrot

Múmínlundurinn olli uppnámi: Rétthafar Múmínálfanna sökuðu Skógræktarfélag Eyjafjarðar um höfundarréttarbrot
Fréttir
Í gær

Hafnarfjarðarbær fer aftur í hart við bindindissamtök

Hafnarfjarðarbær fer aftur í hart við bindindissamtök
Fréttir
Í gær

Fjárhagslegt ofbeldi og vanræksla gagnvart eldra fólki – „Í mörgum tilfellum á ofbeldið sér stað innan fjölskyldu“

Fjárhagslegt ofbeldi og vanræksla gagnvart eldra fólki – „Í mörgum tilfellum á ofbeldið sér stað innan fjölskyldu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill tætir í sig myndband Miðflokksmanna – „Í Kópavogi var rekið það sem kallaðist Fávitahæli“

Egill tætir í sig myndband Miðflokksmanna – „Í Kópavogi var rekið það sem kallaðist Fávitahæli“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir ömurlegt af þingmanni Sjálfstæðisflokksins að ráðast á lögregluna

Segir ömurlegt af þingmanni Sjálfstæðisflokksins að ráðast á lögregluna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tapaði eftir að hann vildi ekki segja hver lagði bílnum

Tapaði eftir að hann vildi ekki segja hver lagði bílnum
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Framtíðin blasti við Karli og Margréti – Fallega lagið sem þjóðin þekkir var hinsta kveðja þeirra

Framtíðin blasti við Karli og Margréti – Fallega lagið sem þjóðin þekkir var hinsta kveðja þeirra