fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Fréttir

Þýska ríkisstjórnin styður bann við innflutningi á rússneskri olíu

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 2. maí 2022 18:00

Það er úran í tunnunum umræddu.Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýska ríkisstjórnin styður bann við innflutningi á þýskri olíu til ríkja Evrópusambandsins. Það að hún hafi náð saman um þetta eykur líkurnar á að ESB muni setja innflutningsbann á rússneska olíu.

Dpa-fréttastofan skýrir frá þessu og vísar til heimildarmanna í Brussel.

ESB hefur nú þegar bannað innflutning á kolum frá Rússlandi en enn hefur ekki verið sett innflutningsbann á olíu og gas því erfitt er að finna aðra orkugjafa eða seljendur.

Úkraínumenn og fleiri hafa gagnrýnt Þjóðverja fyrir að losa sig ekki úr heljargreipum Rússa hvað varðar jarðefnaeldsneyti.

Nú eru það aðeins Ungverjaland, Slóvakía, Spánn, Ítalía og Grikkland sem eru andsnúin innflutningsbanni á rússneska olíu að sögn heimildarmanna dpa. Ástæðan fyrir sinnaskiptum Þjóðverja er talin vera að þeim tókst nýlega að finna aðra aðila til að kaupa olíu af.

Í síðustu viku sagði Robert Habeck, efnahagsmálaráðherra, að á átta vikum hafi Þjóðverjar minnkað hlutfall rússneskrar olíu af heildarnotkuninni úr 35% í 12%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þrír Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í S-Afríku

Þrír Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í S-Afríku
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands

Rósa fór í sjálfakandi leigubíl á dögunum: „Ákjósanlegri kostur en strætisvagnar“ – Stutt í að tæknin komi til Íslands
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gekk inn á lögreglustöð í Grafarholti í handjárnum

Gekk inn á lögreglustöð í Grafarholti í handjárnum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Súlunesmálið: Hesthússeigandi ber Margréti illa söguna – „Gömlu hjónin voru eins og þrælar“

Súlunesmálið: Hesthússeigandi ber Margréti illa söguna – „Gömlu hjónin voru eins og þrælar“
Fréttir
Í gær

Fóru ekki að lögum í máli hælisleitanda – Talsmaður sinnti ekki kærubeiðni

Fóru ekki að lögum í máli hælisleitanda – Talsmaður sinnti ekki kærubeiðni
Fréttir
Í gær

Opinbera dánarorsök Rob Reiner og eiginkonu hans

Opinbera dánarorsök Rob Reiner og eiginkonu hans