Því er nú velt upp hvort hinn 38 ára gamli Carlos Tevez gæti skrifað undir hjá nýju félagi eftir að leikmaðurinn sást í Mílanó á Ítalíu.
Tevez hefur verið án félags frá því hann yfirgaf Boca Juniors síðastliðinn júlí. Hann hefur þó ekkert sagt um það hvort hann sé hættur.
Í síðustu viku sást Argentínumaðurinn á spjalli við þá Stefano Piolo og Paolo Maldini á æfingsvæði Milan. Þá heimsótti hann einnig æfingasvæði Inter og Juventus, ásamt því að mæta á leik liðanna um síðustu helgi.
Tevez gerði á sínum tíma garðinn frægan í ensku úrvalsdeildinni með Manchester-liðunum, City og United.