fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
433Sport

Manchester United staðfestir nýjan samning Bruno – ,,Það er sannur heiður að klæðast treyju Manchester United“

Aron Guðmundsson
Föstudaginn 1. apríl 2022 09:24

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur staðfest að portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes hafi skrifað undir samning út tímabilið 2026. Þá er ákvæði í samningnum sem gefur leyfi til þess að framlengja samninginn um eitt ár.

Bruno hefur komið inn af miklum krafti í lið Manchester United frá því að hann gekk til liðs við félagið frá Sporting Lisbon.

Í þeim 117 leikjum sem hann hefur spilað fyrir liðið hefur hann skorað 49 mörk og gefið 39 stoðsendingar.

,,Frá þeim tímapunkti sem ég gekk til liðs við Manchester United hef ég átt sérstakt samband við félagið og frábæra stuðningsmenn þess. Ég ólst upp við það að horfa á Manchester United og dreymdi um að geta spilað fyrir félagið.“

,,Jafnvel núna eftir tvö ár hjá félaginu fæ ég ennþá sérstaka tilfinningu við það að stíga inn á Old Trafford, heyra stuðningsmennina syngja lag um mig og skora mark fyrir framan Stretford end. Það er sannur heiður að klæðast treyju Manchester United og berjast fyrir félagið.“

,,Ég vil afreka svo miklu meira hérna og veit að það gildir einnig um liðsfélaga mína og starfsliðið. Meira en allt, viljum við færa stuðningsmönnunum árangurinn sem þeir eiga skilið. Við höfum deilt frábærum stundum saman en það besta á enn eftir að eiga sér stað,“ segir Bruno Fernandes eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við Manchester United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fyrrum þjálfari United efstur á óskalista Brighton í sumar

Fyrrum þjálfari United efstur á óskalista Brighton í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool frumsýninr treyjuna sem liðið spilar í undir stjórn Arne Slot

Liverpool frumsýninr treyjuna sem liðið spilar í undir stjórn Arne Slot
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fábjánagangur að mati Jóns – Hallir byggðar fyrir 6 milljarða en hafa ekki efni á samloku á ferðalagi

Fábjánagangur að mati Jóns – Hallir byggðar fyrir 6 milljarða en hafa ekki efni á samloku á ferðalagi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rangnick hafnar starfinu hjá Bayern – Sá þriðji sem hafnar eftir viðræður

Rangnick hafnar starfinu hjá Bayern – Sá þriðji sem hafnar eftir viðræður