fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fréttir

Innkalla graflax vegna listeríu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 24. mars 2022 10:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eðalfiskur ehf. innkallar neðangreinda vöru á markaði vegna gruns um að hún innihaldi sjúkdómsvaldandi örverur.

Listeria monocytogenes greindist  í sýnum af gröfnum laxi fyrirtækisins. Dreifing og sala afurðanna  úr viðkomandi lotum hefur verið stöðvuð.

Framleiðandi:                                 Eðalfiskur ehf

Vöruheiti:                         Úrvals grafnar sneiðar

Úrvals grafinn lax (bitar)

Úrvals grafinn lax (flök)

Lotunúmer:                      IB22038041046, IB22038041049 og IB22038042048

 

Innköllunin nær til pakkninga með síðasta notkunardag á tímabilinu 13.3.2022 – 11.4.2022. 

Engar aðrar framleiðsluvörur Eðalfisks ehf. eru innkallaðar.

Ofangreind vara hefur verið í almennri sölu í verslunum Krónunnar, Fjarðarkaupum og í Kolaportinu.  Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að skila henni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun þar sem hún var keypt og fá endurgreiðslu. Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríu menguðum matvælum ekki sjúkdómi.

Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn, aldraðir og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Nánari upplýsingar um Listeria monocytogenes má finna á vefsíðu Matvælastofnunar, www.mast.is

 

Eðalfiskur ehf. hefur hagsmuni og öryggi viðskiptavina að leiðarljósi og er þessi innköllun hluti af matvælaöryggiskerfi Eðalfisks ehf. þar sem gæði og öryggi vörunnar er í fyrirrúmi. Fyrirtækið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi innköllun kann að valda viðskiptavinum okkar.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Var á gangi í Osló – Þá hringdi Trump óvænt

Var á gangi í Osló – Þá hringdi Trump óvænt
Fréttir
Í gær

Múlaborgarmálið: Lögregla fundaði með foreldrum og starfsfólki

Múlaborgarmálið: Lögregla fundaði með foreldrum og starfsfólki
Fréttir
Í gær

Kona á sjötugsaldri handtekin á Kanaríeyjum eftir að lík manns fannst inni í brunnum sendibíl

Kona á sjötugsaldri handtekin á Kanaríeyjum eftir að lík manns fannst inni í brunnum sendibíl
Fréttir
Í gær

Íris ber saman þá sem eru blankir og þá sem eiga peninga líkt og Haraldur og Bjarni Ben – „Að eiga peninga er ekki „impressive““

Íris ber saman þá sem eru blankir og þá sem eiga peninga líkt og Haraldur og Bjarni Ben – „Að eiga peninga er ekki „impressive““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn