Róbert Orri Þorkelsson kom inn á sem varamaður í 3-3 jafntefli Montreal gegn Atalanta á útivelli í MLS-deildinni vestanhafs í kvöld.
Róbert Orri kom inn á þegar rúmar tíu mínútur lifðu leiks. Þá var staðan 3-1 fyrir Montreal.
Montreal er í tólfta sæti Austur-deildarinnar með eitt stig eftir fjóra leiki.