Sassuolo gerði sér lítið fyrir og vann Inter 0-2 á San Siro í Serie A, efstu deild ítalska boltans í dag.
Giacomo Raspadori og Gianluca Scamacca gerðu mörkin í fyrri hálfleik.
Inter er því áfram í öðru sæti með 54 stig, 2 stigum á eftir toppliði AC Milan en á þó leik til góða.
Sassuolo er í ellefta sæti með 33 stig.